Einnig er hćgt ađ nálgast ţennan póst á: http://www.landsbanki.is/vegvisir/?1068

12.1.2006

 
Vísitala neysluverđs hćkkar um 0,3% í janúar

Vísitala neysluverđs í janúar 2006 stendur í 249,7 stigum og nam hćkkun frá fyrri mánuđi 0,3%. Vísitala neysluverđs án húsnćđis er 231,5 stig, lćkkađi um 0,22% frá ţví í desember. Ţetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands. Í verđbólguspá okkar fyrir janúar gerđum viđ ráđ fyrir 0,2% lćkkun vísitölunnar, og lágu spár greiningarađila á bilinu frá 0,2% lćkkun til 0,1% hćkkunar. Er ţví hćkkunin mikiđ yfir spám markađsađila. Síđastliđna tólf mánuđi hefur vísitala neysluverđs hćkkađ um 4,4% en vísitala neysluverđs án húsnćđis um 1,0%.

Óvćnt hćkkun á matvćlum
Um helmingur fráviks spár okkar lá í hćkkun matarliđarins, en hann hćkkađi um 2,1% í janúar og eru vísitöluáhrif hćkkunarinnar 0,3%. Međalhćkkun liđarins síđastliđinna ţriggja mánađa er 0,6% og sl. sex mánađa 0,9% og gerđum viđ ráđ fyrir ađ hćkkun liđarins yrđi á ţví bili. Var hćkkun liđarins drifin áfram af hćkkunum á mjólkurvörum (vísitöluáhrif 0,05%), ávöxtum (0,05%) og grćnmeti (0,09%) og mjög fáir liđir lćkkuđu á móti.

Líklegt er ađ álagning úrvinnslugjalds á ýmiskonar umbúđir nú um áramótin hafi leitt til ţess ađ verđlag á matvörum hćkkađi óvenju mikiđ, en nánar er fjallađ um ţetta hér ađ neđan.

Útsölurnar komu sterkar inn
Ţó nokkur áhrif urđu til lćkkunar vegna vetrarútsalna eins og viđ spáđum, en verđ á fötum og skóm lćkkađi um 10,3% (vísitöluáhrif -0,55%), sem er litlu minna en spá okkar sem var -12% (-0,63%).

Mikil hćkkun eigin húsnćđis
Eigiđ húsnćđi í vísitölu neysluverđs hćkkađi um 2,1% (vísitöluáhrif 0,35%). Ţar af voru áhrif af hćkkun markađsverđs á húsnćđi 0,31%, af hćkkun međalvaxta 0,02% og áhrif af hćkkun lóđarleigu 0,03%. Ýmis gjöld vegna húsnćđis hćkkuđu um 9,4% (0,11%). Hćkkanir sem komu fram á undirliđum húsnćđisliđarins vegna hćkkana á fasteignamati voru í takt viđ spá okkar en hćkkun á markađsverđi húsnćđis lítiđ eitt meiri en viđ gerđum ráđ fyrir. Í spá okkar gerđum viđ ráđ fyrir 1,8% hćkkun liđarins (0,27%).

Bensín- og olíuliđurinn hćkkađi um 2,2% (0,11%) sem er í takt viđ spá okkar og sömuleiđis lćkkađi gjald fyrir dagvistun barna um 9,3% (-0,1%), en Reykjavíkurborg tilkynnti um myndarlega lćkkun dagvistargjalda í desember sem tók gildi ţann 1. janúar.


Úrvinnslugjald líkleg skýring á verđbólgu í janúar

Nú um áramótin hófst innheimta á úrvinnslugjaldi á pappa-, plast- og pappírsumbúđir en ţetta gjald er lagt á umbúđir hvort sem ţćr eru fluttar inn einar og sér, utan um vörur eđa framleiddar hér á landi. Ţessu gjaldi er ćtlađ ađ standa undir kostnađi í tengslum viđ reglur sem settar hafa veriđ á Evrópska efnahagssvćđinu varđandi endurvinnslu umbúđaúrgangs. Gjaldiđ verđur innheimt í tolli af innfluttum umbúđum og hjá skattstjórnum vegna innlendrar framleiđslu. Umhverfisráđuneytiđ áćtlar ađ árlega verđi innheimtar 320-340 milljónir sem felur í sér viđbótarkostnađ fyrir hverja fjölskyldu upp á c.a. 3000 krónur á ári.

Eins og fjallađ var um hér ađ ofan hćkkađi neysluverđsvísitalan nokkuđ umfram vćntingar og má leiđa ađ ţví líkum ađ hluti hćkkunarinnar, sérstaklega á matvćlaliđnum, skýrist af álagningu úrvinnslugjaldsins. Greiningardeild Landsbankans tók ekki tillit til ţessara áhrifa í spá sinni og ţví kann hér ađ vera komin skýring á hluta af fráviki spárinnar.


8,6% hćkkun hlutabréfa á 12 dögum
Hlutabréf í Úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands hćkkuđu um 0,9% í dag og hafa ţá hćkkađ um 8,6% á fyrstu 12 dögum ársins. Ţetta er mjög mikil hćkkun á svo skömmum tíma og má til gamans geta ţess ađ ef hlutabréf hćkka međ sama hrađa út áriđ mun hćkkunin nema ríflega 1.100% viđ lok ársins. Ástćđa er til ađ taka fram ađ Greiningardeild spáir ekki 1.100% hćkkun hlutabréfa í ár.
Frá upphafi ársins 2003 hefur Úrvalsvísitalan hćkkađ um samtals 400% og ekki eru merki um verđlćkkanir framundan. Lokagildi vísitölunnar í dag var rúmlega 6.009 stig og er ţetta í fyrsta sinn sem vísitalan lokar yfir 6.000 stigum.

Skuldabréfamarkađur

Viđskipti á skuldabréfamarkađi námu 7,9 mö.kr. í dag. Mest voru viđskipti međ HFF 24 fyrir 1.635 m.kr. og lćkkađi krafa flokksins um ţrjá punkta.

Hreyfingar á skuldabréfamarkađi í dag einkenndust af dćmigerđum viđbrögđum viđ óvćntri verđbólgu. Ávöxtunarkrafa óverđtryggđra bréfa hćkkađi en hún lćkkađi á verđtryggđum bréfum ţar sem ađ fjárfestar fluttu sig yfir í verđtryggđ bréf til ađ ná inn vísitöluhćkkun vegna verđtryggingar sem ađ fellur til um nćstu mánađarmót.

  áv. krafa* gengi*  dagsbr. (pkt) velta (m.kr.)  
 HFF1509144,37 97,66 -2  882  
 HFF1502244,35 95,71 -3  1,635  
 HFF1504344,26 94,81 -1  1,285  
 HFF1506444,18 94,51 -1  855  
 RIKS 15 10014,21 96,25  633  
 RIKB 07 02099,23 90,97  828  
 RIKB 10 03178,09 96,2 13  468  
 RIKB 13 05177,84 96,71 14  889  
 * Miđast viđ hagstćđasta kauptilbođ

Óbreyttir stýrivextir á Evrusvćđi og í Bretlandi

Eftir stýrivaxtafund evrópska seđlabankans hefur bankastjórn hans tilkynnt ađ stýrivöxtum verđi haldiđ óbreyttum. Taliđ er ađ bankinn bíđi frekari merkja um aukinn hagvöxt á evrusvćđinu áđur en hann rćđst í frekari vaxtahćkkanir. Stýrivextir bankans standa nú í 2,25% eftir ađ ţeir voru hćkkađir í síđasta mánuđi í fyrsta skipti í fimm ár. Telja sérfrćđingar á vegum Bloomberg ađ stýrivextir verđi komnir í 2,75% fyrir júnímánuđ. Seđlabanki Englands hélt stýrivöxtum sínum einnig óbreyttum í 4,5% eftir vaxtaákvörđunarfund sem haldinn var í dag.

Vćntingavísitölur hćkka
Ţýska ZEW-vćntingavísitalan, sem mćlir vćntingar fjárfesta hćkkađi meira en greiningarađilar höfđu spáđ og stendur hún nú í sínu hćsta gildi í tvö ár. Ennfremur hefur atvinnuleysi minnkađ og einkaneysla aukist í Ţýskalandi sem stuđlađ gćti ađ auknum hagvexti í landinu. Vćntingavísitala evrópskra neytenda hćkkađi sömuleiđis umtalsvert í síđasta mánuđi og stendur gildi hennar nú í fimm ára hámarki. Ennfremur voru ráđnir fleiri starfsmenn í iđnađargeiranum og ţjónustuiđnađurinn óx mikiđ.


Gengi FlyMe hefur hćkkađ um 100% frá áramótum

Mikiđ virđist vera í gangi hjá sćnska lágfargjaldaflugfélaginu FlyMe, en frá áramótum hefur gengi félagsins hćkkađ um meira en 100%, eđa um ađ međaltali 10% á hverjum viđskiptadegi. Velta međ bréf félagsins hefur einnig aukist umtalsvert síđustu daga. Stćrsti einstaki hluthafi félagsins er Fons eignarhaldsfélag, sem er í eigu Pálma Haraldssonar, hlutur Fons í FlyMe er um 20%.


 
Vísitala neysluverđs hćkkar um 0,3% í janúar
Úrvinnslugjald líkleg skýring á verđbólgu í janúar
8,6% hćkkun hlutabréfa á 12 dögum
Skuldabréfamarkađur
Óbreyttir stýrivextir á Evrusvćđi og í Bretlandi
Gengi FlyMe hefur hćkkađ um 100% frá áramótum
   Velta m.kr.12.01.2006
   Gjaldeyrismarkađur13.200 
   Hlutabréf6.782 
   Skuldabréf7.903 
   Íslenskar vísitölur12.01.2006
     % br. % f. áram. 
   Gengi ISK 103,22 -0,09 -1,60 
   ICEX-15 6.009,12 0,91 8,58 
   Gengi (miđgengi)12.01.2006
     % f. áram. 3m. framv. 
   USD 61,26 -2,89 62,09 
   GBP 107,92 -0,49 109,40 
   CAD 52,66 -2,70 53,52 
   DKK 9,882 -1,28 10,069 
   NOK 9,150 -2,15 9,325 
   SEK 7,919 -0,30 8,080 
   EUR 73,73 -1,27 75,12 
   CHF 47,64 -0,71 48,72 
   JPY 0,5366 0,22 0,5500 
   Krossar12.01.2006
     f. 1 mán. f. áram. 
   EUR/USD 1,2036 1,1975 1,184 
   GBP/USD 1,7617 1,7742 1,7193 
   USD/JPY 114,16 119,87 117,81 
   EUR/JPY 137,4 143,54 139,48 
   EUR/CHF 1,5477 1,5421 1,5565 
   USD/CHF 1,2859 1,2878 1,3146 
   Millibankavextir, %12.01.2006
   REIBID REIBOR 
   O/N9,99 10,14 
   vika10,10 10,25 
   1 mán10,10 10,25 
   3 mán10,03 10,18 
   6 mán10,00 10,15 
   12 mán9,98 10,13 
   Millibankavextir, %12.01.2006
    3 mán. 6 mán 12 mán 
   USD 4,60 4,74 4,86 
   GBP 4,61 4,61 4,65 
   CAD 3,57 3,77 3,99 
   DKK 2,53 2,71 2,90 
   NOK 2,51 2,64 2,92 
   SEK 2,03 2,20 2,47 
   EUR 2,52 2,66 2,85 
   CHF 1,02 1,18 1,43 
   JPY 0,07 0,08 0,12 
   Karfa ISK 3,14 3,27 3,43 
   5 ára skiptivextir, %12.01.2006
     f. 1 mán. f. 3 mán. 
   USD 4,84 4,95 4,76 
   EUR 3,18 3,21 2,93 
   GBP 4,57 4,74 4,58 
   CHF 2,14 2,21 1,82 
   JPY 0,95 0,97 0,91 
   Mesta hćkkun hlutabr.12.01.2006
    Gengi % br. m. kr. 
   SIFI 4,35 4,07 173 
   KOGN 65,40 2,51 23 
   ISB 19,90 2,05 1640 
   BAKK 56,30 1,62 128 
   FO-ATLA 476,50 1,38 
   Mesta lćkkun hlutabr.12.01.2006
    Gengi % br. m. kr. 
   FLAGA 4,30 -1,83 
   FL 21,70 -0,91 649 
   DB 5,75 -0,86 16 
   MOSAIC 19,30 -0,52 776 
   MARL 71,50 0,00 13 
   Erl. hlutabr.vísitölur12.01.2006
   kl. 15:31  % br. % f. áram. 
   DJ 11.019,03 -0,22 2,81 
   S&P 500 1.292,23 -0,15 3,52 
   Nasdaq 2.327,07 -0,18 5,52 
   FTSE 5.730,50 -0,02 1,99 
   DAX 5.530,14 -0,05 2,25 
   CAC 40 4.882,31 -0,17 3,54 
   OMX 973,73 -0,62 1,43 
   Nikkei 16.445,19 0,50 2,07 
   MSCI 1.311,64 0,57 4,28 
   Erl. ríkisskuldabréf, %12.01.2006
    1 ár 5 ár 10 ár 
   BNA 4,53 4,37 4,43 
   UK 4,25 4,18 4,08 
   Evruland 2,68 3,02 3,26 
   Japan 0,07 0,84 1,44 
   Hrávörur12.01.2006
   Olía63,33  USD/fat
   Ál2.349  USD/tonn

Ábyrgðarmaður: Edda Rós Karlsdóttir.

Upplýsingar og framsetning þessa skjals er unnin af starfsmönnum Greiningardeildar Landsbanka Íslands hf. Landsbankinn styðst við gögn úr upplýsingaveitum sem taldar eru áreiðanlegar. Greiningardeild ábyrgist ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þar sem þær geta verið ófullgerðar eða styttar. Greining og álit sem fram koma í þessu skjali og er eingöngu ætlað að veita viðskiptavinum upplýsingar og hugmyndir, en er ekki skuldbinding af hálfu Greiningardeildar eða tilboð um nokkurs konar kaup eða sölu gjaldeyris eða önnur viðskipti. Skoðanir sem settar eru fram og verðhugmyndir geta breyst án fyrirvara í takt við aðstæður á mörkuðum. Landsbanki Íslands hf. eða starfsfólk hans ber ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum, greiningu eða skoðunum sem hér eru settar fram.

Hćtta viđ áskrift á ritum Greiningardeildar