Störf í boði

Almenn umsókn

Gildistími almennra umsókna er 4 mánuðir og er umsóknum eytt að þeim tíma liðnum nema umsækjandi óski eftir framlengdum gildistíma með því að senda póst á starfsumsokn@landsbankinn.is.  

Sækja um starf

Hönnuður

 
Vefdeild Landsbankans á Viðskiptabankasviði er í senn krefjandi og skemmtilegur vinnustaður sem sinnir áhugaverðum verkefnum fyrir allar deildir bankans. Spennandi vinnuumhverfi og
tækifæri til þekkingaruppbyggingar er í boði fyrir grafískan hönnuð sem vill bætast í öflugan hóp starfsmanna í margverðlaunaðri vefdeild.
 
Helstu verkefni:
• Smíði vefborða fyrir helstu vefmiðla landsins
• Vinnsla fyrir vefi Landsbankans og dótturfyrirtækja
• Innri markaðssetning
• Almenn grafíkvinnsla
 
Hæfniskröfur og eiginleikar:
• Grafísk hönnun eða sambærileg menntun
• Reynsla af Adobe Flash og vefhönnun
• Frumkvæði, samviskusemi og vönduð vinnubrögð
• Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
 
Nánari upplýsingar veita:
Snæbjörn Konráðsson, forstöðumaður vefdeildar á Viðskiptabankasviði, snaebjornk@landsbankinn.is
og Ingibjörg Jónsdóttir á Starfsmannasviði í síma 410 7902.
 
Umsóknarfrestur er til og með 13. mars nk.

Sækja um starf

Sumarstarf 2010

Umsóknarfrestur um sumarstörf rennur út þann 12. mars 2010.

Sækja um starf

Hver erum við?

  • Landsbankinn er eitt stærsta fjármálafyrirtæki landsins og veitir alhliða fjármálaþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og stofnana.
  • Landsbankinn leitast við að ráða til sín og hafa í sínum röðum framúrskarandi starfsfólk og efla það í störfum sínum. Til að stuðla að vexti og arðsemi bankans er áhersla lögð á skemmtilegan vinnustað, starfsánægju og gott starfsumhverfi sem og markvissa starfsþróun og þekkingu starfsfólks.
  • Það er viðhorf stjórnenda Landsbankans að starfsfólkið, metnaður þess, kraftur og hollusta séu lykillinn að farsælum rekstri bankans.
  • Nánar um starfsmannastefnu Landsbankans

landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 173,20 174,40
USD Down 0,14 127,78 128,66
GBP Down 0,16 191,02 192,48
JPY Down 0,28 1,4227 1,4345
DKK Up 0,00 23,2680 23,4420
CHF Up 0,01 118,33 119,33
GVT Down 0,06 229,01 229,67
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 178,0303 09.03
USD 130,0602 09.03
GBP 196,4680 09.03
DKK 24,1175 09.03
SEK 18,3720 09.03
NOK 22,2436 09.03
CHF 122,5275 09.03
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 177,9790 10.03
USD 130,7553 10.03
GBP 195,6691 10.03
DKK 24,0859 10.03
SEK 18,3966 10.03
NOK 22,2428 10.03
CHF 122,1111 10.03