Það er stefna Landsbankans að leggja sitt af mörkum til að leiða lækkun vaxta í landinu. Með því vill bankinn gera sitt til að létta greiðslubyrði skuldsettra heimila og fyrirtækja í landinu.
Landsbankinn leggur ríka áherslu á að bjóða viðskiptavinum fjölbreytt framboð innlánsreikninga og samkeppnishæfa innlánsvexti. Þar sem Landsbankinn hefur leitt lækkun vaxta að undanförnu, til að létta greiðslubyrði lántakenda, hafa innlánsvextir lækkað að sama skapi. Bankinn mun þó gæta þess að vaxtastig bankans taki mið af markaðsvöxtum almennt og vera fyllilega samkeppnishæfur við aðrar fjármálastofnanir.Vextir geta breyst allt að þrisvar sinnum í mánuði (þann 1., 11. og 21. hvers mánaðar) en undanfarið hafa örar lækkanir átt sér stað á inn- og útlánsvöxtum allra banka og sparisjóða.
Haustið 2009 kemur að fyrstu endurskoðun vaxta á íbúðalánum með endurskoðunarákvæði á fimm ára fresti. Til að koma til móts við þessa lántakendur, hefur Landsbankinn ákveðið að hækka ekki vexti á þeim lánum sem koma til endurskoðunar á árinu 2009 þrátt fyrir að vaxtakjör þeirra séu undir markaðsvöxtum. Ákvörðun bankans byggir á þeirri forsendu að þróun vaxta fari áfram lækkandi.
Tengt efni
Vextir og verðskrá