Örugg innskráning

Landsbankanum er annt um öryggi þitt á netinu. Þess vegna er okkur kappsmál að standa vörð um netaðgengi að persónuupplýsingum þínum svo að óviðkomandi komist ekki í þær.


Örugg innskráning

Þegar þú opnar Einkabankann eða Fyrirtækjabankann af vefsíðu Landsbankans sendir vafrinn notandanafn þitt og lykilorð yfir netið frá þinni tölvu til netþjóns okkar með EV SSL-tækninni (Extended Validation Secure Sockets Layer). EV SSL dulkóðar þessar upplýsingar áður en þær leggja af stað frá tölvunni þinni, og tryggir þannig að enginn annar en vefþjónn Landsbankans geti lesið þær.

EV SSL öryggisskírteini veita notendum og rekstraraðilum vefsvæða aukna vernd með því að krefjast þess að útgefendur öryggisskírteina (CA) þriðja aðila fylgi ströngum útgáfu- og rekstrarferlum, sem skilgreindir eru af CA/Browser Forum.

Kostir EV SSL öryggisskírteinisins

Vafrinn ber kennsl á vefsvæðið og eiganda þess og því sjá notendur með skýrum hætti við hvern þeir eru að skipta.

Vafrinn sýnir að vefurinn hefur verið staðfestur af áreiðanlegum, löggiltum útgefanda EV skírteina með birtingu nafns útgefanda öryggisskírteinisins.

Notendur sjá strax ef þeir flytjast af staðfestu EV vefsvæði og lenda á fölsku vefsvæði, þar sem vafrinn mun þá ekki lengur birta staðfestingu á því að um öruggt vefsvæði sé að ræða.

Er tengingin örugg?

Eftir innskráningu getur þú aðgætt hvort netbankatenging þín sé tryggð með EV SSL skírteini. EV öryggi birtist með ólíkum hætti eftir því hvaða vafra þú notar:

Internet Explorer

Í Internet Explorer verður veffangsstikan græn auk þess sem nafn eiganda vefsvæðisins (NBI hf [IS]) birtist í sérstökum reit hægra megin við stikuna. Ef músarbendlinum er haldið yfir reitnum með nafni eiganda vefsvæðisins birtist gluggi með upplýsingum um útgefanda öryggisskírteinisins. Stafirnir „https://“ birtast einnig í byrjun vefslóðarinnar.


Mozilla Firefox

Í Firefox birtist nafn eiganda vefsins (NBI hf (IS)) í grænlituðu svæði vinstra megin í veffangsstikunni. Ef smellt er á nafn eigandans opnast gluggi með upplýsingum um skírteinið og útgefanda þess. „Stafirnir https://“ birtast einnig í byrjun vefslóðarinnar.


Google Chrome

Í Chrome verður veffangsstikan gulleit, auk þess sem stafirnir „https“ verða grænir og mynd af lokuðum hengilási birtist hægra megin í stikunni. Ef smellt er á hengilásinn opnast gluggi með upplýsingum um skírteinið og útgefanda þess. Stafirnir "https://" birtast einnig í byrjun vefslóðarinnar.


Opera

Í Opera birtist nafn eiganda vefsins (NBI hf (IS)) í grænlituðu svæði hægra megin í veffangsstikunni. Þar birtist einnig mynd af lokuðum hengilási. Ef smellt er á grænleita svæðið opnast gluggi með upplýsingum um skírteinið og útgefanda þess. Stafirnir „https://“ birtast einnig í byrjun vefslóðarinnar.


Safari

Í Safari birtist nafn eiganda vefsins (NBI hf) hægra megin í veffangsstikunni og þar til hliðar mynd af lokuðum hengilási. Ef smellt er á nafn eiganda vefsins eða á hengilásinn opnast gluggi með upplýsingum um skírteinið og útgefanda þess. Stafirnir „https://“ birtast einnig í byrjun vefslóðarinnar.



Spilliforrit

Ein tegund spilliforrita á netinu er svokölluð þriðja kynslóð Trojuhesta (e. man-in-the-browser Trojan) sem hefur valdið usla víða um heim. Þessi tegund spilliforrita sækir aðgangsupplýsingar netbankanotenda í þeim tilgangi að misnota þær.

Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) hafa þegar varaði við þessari tegund spilliforrita. Við viljum ítreka mikilvægi þess að tölvur netnotenda hafi viðurkennda vírusvörn og að stýrikerfi og önnur forrit séu ávallt með nýjustu uppfærslum.

Dæmi um forrit sem 3. kynslóð Trojuhesta hafa notað sem smitleið eru Adobe Acrobat, Apple Quick Time, Real Player og Java og því mikilvægt að uppfæra slík forrit þegar nýjar uppfærslur berast.

Nánari upplýsingar hér Netöryggi.is - Spilliforrit


Samvinna á vettvangi SFF

Gátlisti um tölvuöryggi. SSF

Íslensk fjármálafyrirtæki standa mjög framarlega á sviði öryggismála og er sú vinna í stöðugri þróun undir forystu Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF). SFF eiga í nánu samstarfi við Póst- og fjarskiptastofnun, lögreglu og fleiri aðila um aðgerðir til að tryggja áframhaldandi öryggi í netviðskiptum.

Við bendum þér sérstaklega á leiðbeiningar frá SFF. Þar eru upplýsingar um hvað beri að varast við meðferð aðgangsupplýsinga og upplýsingum um hvað ber almennt að varast við netnotkun.

Einnig eru góðar upplýsingar um netöryggi að finna á www.netoryggi.is.


landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 150,15 151,25
USD Up 0,22 117,94 118,80
GBP Up 0,08 182,86 184,38
JPY Up 0,28 1,4052 1,4184
DKK Up 0,01 20,1640 20,32
CHF Up 0,15 116,56 117,66
GVT Up 0,08 206,01 206,69
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,1993 08.09
USD 120,6048 08.09
GBP 184,7484 08.09
DKK 20,8660 08.09
SEK 16,5519 08.09
NOK 19,6102 08.09
CHF 120,4468 08.09
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,2336 09.09
USD 120,8804 09.09
GBP 186,8122 09.09
DKK 20,8617 09.09
SEK 16,8377 09.09
NOK 19,6142 09.09
CHF 120,4458 09.09