Lagalegur fyrirvari

Upplýsingar birtar á vef þessum eru byggðar á heimildum sem Landsbankinn telur áreiðanlegar. Landsbankinn getur ekki ábyrgst að þær séu allar réttar. Þá kunna upplýsingar og skoðanir þær sem fram koma að breytast án fyrirvara.

Upplýsingar sem birtar eru á vef Landsbankans fela á engan hátt í sér ráðleggingar til viðskiptavina um kaup eða sölu tiltekinna fjármálagerninga og bera notendur vefsins einir ábyrgð á þeim fjárfestingaákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinga sem birtar eru á vefnum. Landsbankinn kann þó að veita ráðgjöf til viðskiptavina bankans í gegnum vefinn um kaup eða sölu fjármálagerninga og/eða um skattamál enda kemur þá skýrt fram á vefnum að um ráðgjöf sé að ræða. Upplýsingar og ráðgjöf Landsbankans á vefnum miðast ekki við ákveðin fjárfestingarmarkmið, ákveðna fjárhagsstöðu eða sérhagsmuni tiltekinna viðskiptavina og er ávallt almenns eðlis þar sem ekki er hægt að taka tillit til aðstæðna hvers og eins. Landsbankinn ber því ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af upplýsinga- eða ráðgjöf bankans né tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á vef bankans. Þá ber Landsbankinn ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefinn, um skemmri eða lengri tíma.

Landsbankinn á höfundarrétt á öllum þeim upplýsingum sem fram koma á vef bankans, nema annað sé sérstaklega tekið fram eða leiða megi af eðli máls. Skriflegt samþykki Landsbankans þarf til að endurbirta upplýsingar sem fram koma á vef bankans, dreifa þeim eða afrita þær. Ekki skiptir máli hvers eðlis þær upplýsingar eru né í hvaða tilgangi ætlunin er að endurbirta þær, afrita þær eða dreifa þeim. Viðskiptavinum Landsbankans er þó heimilt að vista slíkar upplýsingar til einkanota.

Viðskipti með fjármálagerninga eru mjög áhættusöm í eðli sínu. Verðbreytingar í fortíð gefa ekki endilega vísbendingu um verðbreytingar í framtíð. Notendur á vef Landsbankans eru hvattir til að afla sér almennra upplýsinga um eðli verðbréfaviðskipta, fjárfestingamálefni, skattamál o.fl. sem tengist verðbréfaviðskiptum hjá ráðgjöfum Landsbankans.

Á yfirlitum yfir fjármálagerninga viðskiptavina bankans tekur markaðsverðmæti ekki tillit til þóknana eða annars kostnaðar sem kann að falla til við sölu. Á yfirlitum er „markaðsgengi“ nýjasta gengi og „markaðsvirði“ verðmæti fjármálagerninga miðað við það gengi. Á hreyfingaryfirlitum er „gengi“ viðskiptagengi hreyfinga og „verð“ viðskiptaverð út frá því. Markaðsgengi fjármálagerninga sem skráðir eru í Kauphöll Íslands hf. er almennt síðasta viðskiptagengi þeirra á þinginu. Sé langt um liðið frá síðustu viðskiptum er einnig litið til hagstæðustu kauptilboða þegar markaðsverðið er metið. Landsbankinn áskilur sér rétt til leiðréttinga á yfirlitum.


landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 172,90 174,10
USD Down 0,08 126,68 127,56
GBP 0,00 190,12 191,58
JPY 0,00 1,4003 1,4119
DKK 0,00 23,23 23,4060
CHF Up 0,01 118,15 119,15
GVT Down 0,02 228,15 228,81
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 178,1707 11.03
USD 130,6313 11.03
GBP 194,7245 11.03
DKK 24,1379 11.03
SEK 18,3411 11.03
NOK 22,2845 11.03
CHF 122,6875 11.03
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 178,1157 12.03
USD 129,9918 12.03
GBP 195,1906 12.03
DKK 24,1040 12.03
SEK 18,3976 12.03
NOK 22,3340 12.03
CHF 122,4355 12.03