Vefsvæði Landsbankans er þjónustu-, upplýsinga og fjármálavefur fyrir einstaklinga, fyrirtæki og fjárfesta.
Við þróun vefsins hefur megináhersla verið lögð á framúrskarandi notendaviðmót og aðgengi fyrir alla. Hönnun forsíðunnar gerir ráð fyrir að þaðan sé hægt nálgast alla helstu þjónustu vefsins með einum músarsmelli. Forsíðunni er skipt upp í þrjú aðskilin svæði til að bæta yfirsýn notenda um þjónustu bankans.
- Í efsta þriðjungi forsíðunnar er aðalleiðarkerfi vefsins og efst í hægra horni er hægt að skrá sig inn í Einkabanka, Fyrirtækjabanka og E*TRADE á einfaldan og öruggan hátt. Fyrir miðju svæðinu eru tengingar í helstu þjónustuþætti bankans: Vörðuna, sparnað, lán, greiðslukort, tryggingar og fasteignaþjónustu.
- Á miðsvæði forsíðunnar er aðgengi að nýjustu fréttum frá bankanum. Hægra megin á miðsvæðinu er tafla yfir gengi gjaldmiðla.
- Neðsti hluti forsíðunnar er lagður undir tenglasafn yfir helstu þjónustuþætti bankans.
Sérstaklega hefur verið lagt upp úr gerð rafrænna umsókna en yfir 30 slíkar eru á netinu. Auk þess geta notendur undirbúið sig vel á reiknivélum á vefnum.
Leitast hefur verið við að gera vefinn sem aðgengilegastan fyrir blinda og sjónskerta.
Vefurinn er unninn samkvæmt nýjustu vefstöðlum og forritaður í .NET þróunarumhvefinu frá Microsoft. Sérstök úttekt hefur verið gerð á öryggi vefsins í samræmi við öryggisstaðla bankans.
Landsbankinn leggur metnað sinn í að vefurinn þjóni viðskiptavinum sínum sem best. Við hvetjum notendur að senda ábendingar sínar og fyrirspurnir um vefinn á netfangið
.