Þeir skilmálar og reglur sem Landsbankinn hefur sett leiða af tilskipun Evrópusambandsins og nýjum lögum um verðbréfaviðskipti. Landsbankinn er ekki í aðstöðu til að semja um, eða gera breytingar á einstökum þáttum þeirra. Hér er í raun um að ræða reglur um samskipti viðskiptavina og bankans sem ætlaðar eru til að skera úr vafamálum og tryggja örugg og farsæl viðskipti.