MiFID - Markets in Financial Instruments Directive

Lög um verðbréfaviðskipti

Með lögum nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti var innleidd í íslenskan rétt tilskipun Evrópusambandsins um markaði fyrir fjármálagerninga (e. Markets in Financial Instruments Directive eða svokölluð MiFID-tilskipun) og tilskipun um samræmingu krafna um gagnsæi í tengslum við upplýsingar um útgefendur verðbréfa sem eru skráð á skipulegan markað (e. Transparency Directive eða gagnsæistilskipunin).

MiFID-tilskipunin nær til allra ríkja á EES svæðinu, þ.e. aðildarríkja ESB auk Íslands, Noregs og Liechtenstein. Með lögunum breyttust ýmsar mikilvægar reglur sem lúta að því hvernig staðið skal að verðbréfaviðskiptum. Markmið laganna er að setja samræmdar reglur um neytendavernd fjárfesta og skapa sameiginlegan innri markað með fjármálaþjónustu. Lögð er áhersla á aukið eftirlit, faglega framkvæmd og upplýsingagjöf. Þá er löggjöfinni ætlað að tryggja að þeir viðskiptavinir fjármálafyrirtækja, sem eiga í verðbréfaviðskiptum, fái ávallt viðeigandi upplýsingar og ráðgjöf. Til þess að svo megi verða eru lagðar auknar skyldur á viðskiptavini um upplýsingagjöf til fjármálafyrirtækja.

Samþykki viðskiptavina

Til að verðbréfaviðskipti geti gengið eðlilega fyrir sig þurfa viðskiptavinir Landsbankans að samþykkja eftirfarandi:

Almennir skilmálar Landsbankans um verðbréfaviðskipti

Stefna Landsbankans um framkvæmd viðskiptafyrirmæla

Útdráttur úr reglum Landsbankans um hagsmunaárekstra

Áhættulýsing vegna markaðsviðskipta með fjármálagerninga

Nánari upplýsingar

Ef þú óskar frekari upplýsinga um áhrif laga um verðbréfaviðskipti á samband þitt við Landsbankann er þér velkomið að hafa samband við fjármálaráðgjöf Landsbankans í síma 410 4040 eða tengilið þinn í verðbréfaviðskiptum innan bankans. Einnig má senda tölvupóst á netfangið .

Spurningar og svör um MiFID

Nánar um MiFID

Tengt efni

MiFID tilskipunin (íslenska)

Upplýsingarit um MiFID fyrir neytendur
gefið út af Samstarfsnefnd evrópskra eftirlitsaðila á verðbréfamarkaði (CESR) þann 7. mars 2008.

Lög um verðbréfaviðskipti

Lög um kauphallir

Upplýsingasíða Fjármálaeftirlitsins um MiFID

Fyrirvarar

Kynntu þér málið

  • Fáðu aðstoð hjá ráðgjöfum í Fjármálaráðgjöf í síma 410 4000
  • Sendu fyrirspurn á netfangið
  • Fjármálaráðgjöf er staðsett í Austurstræti 11

landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 156,04 157,16
USD Down 0,02 119,42 120,28
GBP Down 0,05 187,56 189,10
JPY Down 0,07 1,38 1,3924
DKK 0,00 20,9370 21,0990
CHF Down 0,08 114,61 115,67
GVT Down 0,03 211,75 212,42
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 160,6076 31.07
USD 122,9099 31.07
GBP 191,9363 31.07
DKK 21,7158 31.07
SEK 17,0272 31.07
NOK 20,3214 31.07
CHF 119,2431 31.07
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 160,7035 31.07
USD 122,9674 31.07
GBP 191,5891 31.07
DKK 21,7215 31.07
SEK 17,2514 31.07
NOK 20,2417 31.07
CHF 118,8669 31.07