Eignarhaldsfélagið Vestia ehf. er dótturfélag Landsbankans sem ber ábyrgð á umsýslu og ráðstöfun eignarhalds í atvinnufyrirtækjum sem bankinn fær í hendur í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar atvinnufyrirtækja, þ.e. þar sem kröfum bankans er breytt í hlutafé eða sem koma til við skuldaskil viðskiptamanna bankans. Þá hefur félagið einnig með höndum umsýslu eignarhluta í atvinnufyrirtækjum sem af öðrum orsökum þykir rétt að félagið annist.
Meginmarkmið Landsbankans með starfsemi Vestia og meðferð eigna í umsýslu félagsins eru:
-
hámörkun endurheimta bankans við ráðstöfun eigna og þar með lágmörkun afskrifta sem ella myndu lenda á bankanum
-
að tryggja aðskilnað á milli lánastarfsemi bankans annars vegar og hins vegar eignarhalds og umsýslu bankans á hlutafé í atvinnufyrirtækjum
-
að lágmarka eignarhaldstíma bankans á hlutafé atvinnufyrirtækja sem bankinn kann að eignast á grundvelli umbreytingarkrafna eða fullnustu veða
-
að við umsýslu og ráðstöfun eigna verði gætt jafnræðis og gagnsæis.
Nánari upplýsingar er að finna á www.vestia.is.
Eignarhaldsfélagið Vestia ehf.
- Kt. 670509-1330
- Austurstræti 11
- 155 Reykjavík
- Fax: 4103771
- vestia.is
-