Reginn ehf.

Reginn ehf. er sértækt dótturfyrirtæki Landsbankans. Félagið mun fara með eignarhald bankans á fasteignum eða hlutafé fasteignafélaga sem líklegt er að bankinn eigi um einhvern tíma. Félagið mun bera ábyrgð á umsýslu og ráðstöfun fasteigna eða fasteignafélaga, sem bankinn kann að eignast vegna umbreytingar krafna í hlutafé eða vegna fullnustugjörninga. Stofnun Regins ehf. og starfsemi félagins er einn þáttur í þeim víðtæku ráðstöfunum sem Landsbankinn beitir við fjárhagslega endurskipulagningu atvinnufyrirtækja.

Reginn ehf. var stofnað í framhaldi af þeim sérstöku aðstæðum sem upp hafa komið á innlendum fjármálamarkaði.  Starfsemi félagsins er hugsuð sem tímabundin og er m.a. markmið félagsins að varðveita verðmætin sem liggja í fasteignum og fasteignafélögum í eigu félagsins með leigu, sölu eða annarri tekjuöflun, ennfremur að tryggja gegnsæi í umbreytingarferlinu allt til þess að hægt sé að selja eignina aftur út  á markað. Áætlað er að sala einstakra eigna hefjist sem fyrst ef að markaðsaðstæður bjóða upp á það. Þá kemur til greina að selja félagið í heild eða einstaka einingar úr eignasafni félagsins.

Félagið er í eðli sínu fullnustufélag og skal sem slíkt eingöngu eignast fasteignir eða hlutafé í fasteignafélögum í tengslum við umbreytingar bankans á kröfum í hlutafé eða vegna annarra fullnustugjörninga bankans. Bein fjárfesting félagsins í öðrum tilgangi er ekki heimil.

Reginn ehf. vinnur náið með helstu sviðum Landsbankans og má gera ráð fyrir nánu samstarfi við m.a. fyrirtækjaráðgjöf bankans varðandi þjónustu í tengslum við verkefni tengt sölu og skráingu félaga og eigna.

Meginmarkmið Landsbankans með starfsemi Regins ehf. og meðferð eigna í umsýslu félagsins eru:
  • hámörkun endurheimtna bankans við ráðstöfun eigna og þar með lágmörkun afskrifta sem ella myndu lenda á bankanum
  • að tryggja aðskilnað á milli lánastarfsemi bankans annars vegar og hins vegar eignarhalds og umsýslu bankans á fasteignum og hlutafé í fasteignafélögum
  • að lágmarka eignarhaldstíma bankans á hlutafé fasteignafélaga sem bankinn kann að eignast á grundvelli umbreytingar krafna eða fullnustu veða
  • að við umsýslu og ráðstöfun eigna verði gætt jafnræðis og gagnsæis
Félagið hefur sett sér sérstakar vinnureglur um meðferð, umsýslu og ráðstöfun fasteigna og eignarhluta sem félagið kann að eignast. Reglur þessar verða birtar opinberlega innan tíðar.

Framkvæmdastjóri félagsins er Helgi S. Gunnarsson.

Nánari upplýsingar er að finna á www.reginnehf.is.

Reginn ehf.

Kt.  630109-1080
Borgartún 25
105 Reykjavík
www.reginnehf.is


landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 151,95 153,06
USD Down 0,19 118,42 119,28
GBP Up 0,18 182,32 183,82
JPY Down 0,21 1,4038 1,4168
DKK 0,00 20,4050 20,5630
CHF Down 0,34 116,88 117,98
GVT Down 0,03 207,59 208,27
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 156,7588 02.09
USD 122,3388 02.09
GBP 188,4562 02.09
DKK 21,2132 02.09
SEK 16,7874 02.09
NOK 19,7886 02.09
CHF 121,7926 02.09
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 157,1482 03.09
USD 122,1733 03.09
GBP 187,8803 03.09
DKK 21,2592 03.09
SEK 17,0175 03.09
NOK 20,0087 03.09
CHF 121,5719 03.09