Bankaráð og skipurit

Skipurit bankans á PDF formi




Bankaráð Landsbankans

AðalmennVaramenn
Gunnar Helgi Hálfdánarson, formaður Andri Geir Arinbjarnarson, 1. varamaður
Haukur Halldórsson, varaformaður Guðrún Ragnarsdóttir, 2. varamaður
Guðríður Ólafsdóttir Loftur Árnason, 3. varamaður
Sigríður Hrólfsdóttir Þórdís Ingadóttir, 4. varamaður
Friðrik Pálsson,
fulltrúi Skilanefndar Landsbanka Íslands hf.
Lárentsínus Kristjánsson,
varamaður Friðriks Pálssonar

Starfsreglur fyrir bankaráð NBI hf.

Gunnar Helgi Hálfdánarson

Gunnar Helgi Hálfdánarson, formaður, er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og er með meistarapróf í rekstrarhagfræði frá McMaster University í Kanada. Gunnar Helgi var forstjóri Landsbréfa hf. á árunum 1989-1999 og framkvæmdastjóri Fjárstýringar Landsbanka Íslands hf. frá 1997 til 1999. Hann var framkvæmdastjóri hjá AllianceBernstein Investments í Svíþjóð á árunum 1999-2009, þar sem helstu verkefni hans voru þróun viðskiptasambanda milli stærstu banka Norðurlandanna og íslenskra lífeyrissjóða.

Haukur Halldórsson

Haukur Halldórsson, varaformaður, útskrifaðist sem búfræðingur frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri árið 1965. Haukur hefur verið bóndi frá 1967 og var formaður Stéttarsambands bænda á árunum 1987-1995. Hann var formaður Framleiðsluráðs landbúnaðarins í 9 ár. Haukur sat í stjórn Samtaka norrænna bænda frá 1987 til 1997 og var formaður frá 1988 til 1990. Hann var kosinn varaformaður bankaráðs Landsbankans í nóvember 2008 og tók við sem formaður í febrúar 2009. Haukur var sæmdur Riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 1994.

Guðríður Ólafsdóttir

Guðríður Ólafsdóttir er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og er með meistaragráðu í heimspeki og fjölmiðlafræðum frá Háskólanum í Osló. Hún tók til starfa sem sérfræðingur á fyrirtækjasviði Landsbanka Íslands hf. árið 2008 og hafði þá starfað hjá Lýsingu hf. á árunum 1993 til 2007, m.a. sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs. 2008 til 2009 vann Guðríður fyrir Landsbanka Íslands hf. og síðar Landsbankann (NBI hf.) en hefur nú hætt störfum til að stunda frekara nám.

Sigríður Hrólfsdóttir

Sigríður Hrólfsdóttir er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu í rekstrarhagfræði frá Berkley í Kaliforníu. Sigríður starfaði á fjárstýringarsviði Íslandsbanka á árunum 1994-1998 og síðan hjá Eimskip frá 1998 til 2004, upphaflega sem forstöðumaður fjárhagsdeildar en síðan sem framkvæmdastjóri sömu deildar frá árinu 2000. Hún var forstjóri fjárfestingar- og fjárhagssviðs Tryggingamiðstöðvarinnar á árunum 2007-2008 og hefur starfað sem framkvæmdastjóri Árvakurs frá 2009.

Friðrik Pálsson

Friðrik Pálsson útskrifaðist sem viðskiptafræðingur (cand. oecon.) frá Háskóla Íslands 1974. Á árunum 1974 - 77 var Friðrik varaformaður stjórnar Sambands íslenskra fiskframleiðenda (SÍF) og forstjóri fyrirtækisins frá 1978 til 1985. Hann varð forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, stærsta framleiðanda frystra sjávarafurða á Íslandi, árið 1986 og gegndi því starfi til 1999. Friðrik var stjórnarformaður Símans 1999-2002 og stjórnarformaður SÍF 1999-2003. Undanfarin ár hefur Friðrik í auknum mæli látið til sín taka sem fjárfestir í hótelrekstri og ferðþjónustu. Hann er aðaleigandi og framkvæmdastjóri fasteignfélagsins Polar Hotels og rekstrarfélagsins Hallgerðar, sem rekur fjögur hótel á Suðurlandi. Friðrik hefur alla tíð tekið virkan þátt í félagsstörfum og einnig látið að sér kveða í góðgerðarmálum.