Landsbankinn er eitt stærsta fjármálafyrirtæki landsins með víðtækasta útibúanetið. Landsbankinn veitir einstaklingum, fyrirtækjum og fjárfestum trausta og alhliða fjármálaþjónustu sem byggir á langtíma viðskiptasamböndum.
Alhliða viðskiptabankastarfsemi er kjarninn í starfsemi bankans. Landsbankinn mun nýta öflugt útibúanet og sterka stöðu sem stærsta fjármálafyrirtæki landsins til að sækja fram.
Útibúanet Landsbankans er mjög víðfeðmt, útibúin eru 37 talsins um allt land. Meginsvið bankans eru Viðskiptabankasvið, Fyrirtækjasvið og Fjárstýring og markaðir. Stoðsvið og deildir eru Rekstarsvið, Lögfræðisvið, Starfsmannasvið og Fjármálasvið. Innri endurskoðun bankans heyrir undir bankaráð.
Landsbankinn var stofnaður þann 9. október 2008. Bankinn tók yfir innlendar eignir Landsbanka Íslands hf. til að tryggja eðlilega bankastarfsemi og öryggi innstæðna á Íslandi. Stofnefnahagsreikningur bankans var gefinn út í desember 2009 og samið um uppgjör Landsbankans (NBI hf.) og Landsbanka Íslands hf. Í kjölfarið eignaðist Ríkissjóður Íslands 83,333% hlut í bankanum og Landsskil ehf., dótturfélag Landsbanka Íslands hf., eignaðist 18,667% útgefins hlutafjár sem var 24 ma.kr. Steinþór Pálsson er bankastjóri Landsbankans.
Þann 7. október 2008, vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði, ákvað Fjármáleftirlitið (FME) að nýta heimild Alþingis með vísan til 100 gr. a laga nr. 161/2002, sbr. lög nr. 125/2008, til að taka yfir rekstur Landsbanka Íslands hf. Í kjölfar þeirrar ákvörðunar stofnaði FME Landsbankann, NBI hf til að tryggja áframhaldandi bankastarfsemi fyrir heimili og fyrirtæki í landinu.
Landsbankinn er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja
| NBI hf. |
| Austurstræti 11 |
Kt: 471008 0280 |
Sími: 410 4000 |
| 101 Reykjavík |
Swift: NBIIISRE |
Fax: 410 3040 |
| Ísland |
Vsk númer: 99356 |
|