Um starfsemi Menningarsjóðs
Markmið Menningarsjóðs Landsbankans er að styrkja verðug verkefni á sviði mannúðar, menningar, menntamála og íþrótta- og æskulýðsmála um land allt. Sjóðurinn mun starfa í umboði bankaráðs Landsbankans (NBI hf.). Ákvarðanir um allar helstu styrkveitingar bankans verða teknir af stjórn Menningarsjóðs. Stjórn Menningarsjóðs hefur skilgreint eftirfarandi málaflokka vegna úthlutunar úr sjóðnum:
- Mannúðarmál
- Menning og listir
- Menntamál, rannsóknir og vísindi
- Æskulýðsstarf
- Saga, minjar og útgáfa
- Forvarnarstarf
- Umhverfismál
- Nýsköpun
Úthlutanir úr sjóðnum
Úthlutun úr Menningarsjóði starfsárið 2007 var helguð þjónustunni Leggðu góðu málefni lið í Einkabankanum og Fyrirtækjabankanum. Ákveðið var að styrkja öll 75 málefnin í þjónustunni jafnt um eina milljón króna. Heildarúthlutun sjóðsins nam því 75 milljónum króna.
Nánar um úthlutun sjóðsins 2007
Áherslur Menningarsjóðsins á starfsárinu 2006 tengdust fyrst og fremst verkefnum í tilefni af 120 ára afmæli bankans.
Umsóknarfrestur
Frestur til að senda umsóknir til Menningarsjóðs Landsbankans verður auglýstur síðar.
Kynntu þér málið
- Sæktu um styrk úr Menningarsjóði á vefnum.
- Einnig er hægt að senda umsókn með pósti.
Póstfang sjóðsins er: Menningarsjóður Landsbankans, Austurstræti 11, 101 Reykjavík.