|
|
Menningarsjóður Markmið Menningarsjóðs Landsbankans er að styrkja verðug verkefni á sviði mannúðar, menningar, menntamála og íþrótta- og æskulýðsmála um land allt. Sjóðurinn mun starfa í umboði bankaráðs Landsbankans (NBI hf.). Ákvarðanir um allar helstu styrkveitingar bankans verða teknir af stjórn Menningarsjóðs. Menningarsjóður Landsbankans Sendu inn rafræna umsókn |
|
|
|
Menningarnótt Menningarnótt verður haldin hátíðleg laugardaginn 22. ágúst. Landsbankinn hefur verið bakhjarl Menningarnætur frá upphafi eða frá árinu 1996. Opið hús verður í Austurstræti 11 þar sem boðið verður upp á listaverkagöngu, lifandi tónlist og kaffiveitingar. Nánar um Menningarnótt |
|
|
|
Leggðu góðu málefni lið Leggðu góðu málefni lið er þýðingarmikil þjónusta í Einkabanka og Fyrirtækjabanka Landsbankans. Þar er hægt að gerast áskrifandi að mánaðarlegum stuðningi við fleiri en 80 góð málefni eða styrkja með stöku framlagi. Notendur bera engan kostnað við að styrkja málefnin. Nánar um nýju þjónustuna í Einkabankanum |
|
|
|
Torgið - viðskiptasetur Torgið - viðskiptasetur er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Landsbankans og Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja en það veitir einstaklingum aðstöðu og umgjörð til að vinna að viðskiptahugmyndum. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur unnið hörðum höndum að því að bregðast við breyttum aðstæðum eftir hrun efnahagslífsins og er Torgið fyrsti ávöxtur þeirrar vinnu. Landsbankinn leggur til skrifstofuaðstöðu í Austurstræti 16 í Kvosinni. Nánar um Torgið - viðskiptasetur |
|
|
|
Stuðningur við íþróttir um land allt Landsbankinn mun kappkosta að styðja íslenskt íþróttalíf. Við núverandi aðstæður verður það best gert í gegnum útibúin með beinum samstarfssamningum við íþróttafélög hringinn í kringum landið. Í slíku samstarfi leggur bankinn mikla áherslu á að styðja barna- og unglingastarf. |
|
|
|
Söguvefur Á söguvef Landsbankans er fjallað á myndrænan hátt um helstu viðburði í rúmlega 120 ára sögu Landsbankans. Vefurinn byggir að mestu á efni úr veglegum söguannál sem kom út 1. júlí 2006. Annállinn veitir góða sýn yfir starfsemi bankans og þær þjóðlífsbreytingar sem áttu sér stað á tímabilinu. Ritstjóri söguritsins er Eggert Þór Bernharðsson, sagnfræðingur. Söguvefur Landsbankans |