Fréttir og tilkynningar - 19. júní 2007 13:53
Alþjóðahúsið og Landsbankinn kynna tímamótasamstarf
Samstarfssamningur við Landsbankann er sá stærsti sem Alþjóðahúsið hefur gert við einkaaðila
- Landsbankinn tryggir rekstur Alþjóðahússins út árið með 10 milljóna króna samningi
- Innflytjendur í viðskiptum við Landsbankann fá ókeypis íslenskukennslu
- Starfsmenn Landsbankans fá fræðslu um þjónustu í fjölmenningarumhverfi
Alþjóðahúsið og Landsbankinn hafa gert með sér tímamóta bakhjarla- og þjónustusamning sem tryggir rekstur Alþjóðahússins út árið 2007. Samstarfið hljóðar upp á 10 milljónir króna í styrk frá Landsbankanum á þessu ári og er samstarfssamningurinn sá stærsti sem Alþjóðahúsið hefur gert við einkaaðila. Samstarf Alþjóðahússins og Landsbankans er afar fjölbreytt. Það felur meðal annars í sér að skipulögð verða námskeið fyrir viðskiptavini og starfsfólk Landsbankans.
Sá þáttur samstarfsins sem hefur hvað mesta sérstöðu er að Alþjóðahúsið mun taka þátt í að móta og skipuleggja námskeið fyrir viðskiptavini Landsbankans, sem eru af erlendu bergi brotnir þar sem fléttað verður saman íslenskukennslu og fræðslu um fjármál. Viðskiptavinum mun bjóðast að sækja námskeiðin sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin, sem þróuð verða í samvinnu við sérfræðinga Landsbankans í fjármálafræðslu, munu hefjast í haust. Þau verða kynnt nánar síðar.
Landsbankinn hyggst einnig fá sérfræðinga Alþjóðahússins í lið með sér til að undirbúa og flytja fyrirlestra fyrir starfsmenn Landsbankans um þjónustu í fjölmenningarumhverfi. Gert er ráð fyrir að fara í útibú um allt land með slíka fræðslu. Námskeiðin verða skipulögð í samstarfi við fræðsludeild Landsbankans.
Meðal þess sem samningurinn felur í sér er að hrundið verður af stað forvarnarátaki meðal þjálfara í yngri flokkum knattspyrnu. Þróað verður námsefni og skipulögð námskeið til að gera þjálfara hæfari til að takast á við þjálfun í fjölmenningarumhverfi.
Síðast en ekki síst verður Landsbankinn bakhjarl viðurkenningar Alþjóðahússins til þeirra sem hafa sinnt lofsverðu starfi í málefnum innflytjenda. Landsbankinn verður bakhjarl viðurkenningar næstu þrjú ár. Viðurkenningin hefur verið veitt síðasta virka dag desembermánaðar nokkur undanliðin ár en frá og með desember 2007 verður viðurkenningin kennd við Thor Jensen og Landsbankinn bakhjarl hennar.
"Miklu meira en venjulegur styrktarsamningur"
Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri segir Landsbankann áður hafa stutt við bakið á Alþjóðahúsinu en stuðningurinn verði nú bæði markviss og myndarlegri.
"Við erum einstaklega stolt af samstarfi okkar við Alþjóðahúsið. Þetta er miklu meira en venjulegur styrktarsamningur. Við viljum veita nýjum íbúum í íslensku samfélagi bestu mögulega fjármálaþjónustu. Landsbankinn hefur lagt mikla áherslu á að veita landsmönnum ókeypis fjármálafræðslu og hefur til að mynda staðið fyrir fjölsóttum fjármálakvöldum síðustu þrjú ár. Við viljum auka þessa þjónustu enn frekar og höfum þess vegna ákveðið að bjóða upp á sértæk námskeið fyrir innflytjendur í samvinnu við Alþjóðahúsið. Þá er ekki síður mikilvægt að undirbúa starfsfólk okkar og þess vegna munum við, í samstarfi við Alþjóðahúsið, fara í öll útibú með fræðslu um þjónustu í fjölmenningarumhverfi."
"Mjög vænlegt að sameina íslenskukennslu og fjármálafræðslu"
Einar Skúlason framkvæmdastjóri Alþjóðahússins segir það hafa mikla þýðingu að fá jafn sterkan bakhjarl og Landsbankann. "Fjárstuðningur bankans gerir okkur kleift að efla starf okkar almennt og takast á við ýmis verkefni af meiri krafti. Það gleður okkur einnig að geta veitt bankanum sérfræðiþjónustu. Við teljum mjög vænlegt að sameina íslenskukennslu og fjármálafræðslu. Viðskiptavinir fá innsýn í ýmis hugtök sem tengjast fjármálaþjónustu og verða þá betur í stakk búnir að hefja sparnað og tryggja sig svo eitthvað sé nefnt."
Um Alþjóðahúsið
Alþjóðahúsið er upplýsingamiðstöð fyrir innflytjendur og um málefni innflytjenda. Hægt er að fá ráðgjöf í Alþjóðahúsinu, túlkanir og þýðingar, fræðslu og íslenskukennslu. Alþjóðahúsið stendur auk þess fyrir margvíslegri upplýsingastarfsemi og menningaruppákomum.
Til baka