Fréttir

Fréttir og tilkynningar - 11. apríl 2007 11:20

Landsbankinn úthlutar 75 milljónum króna til 75 góðra málefna

 Menningarsjóður Landsbankans hefur ákveðið að styrkja 75 góð málefni um eina milljón króna hvert. Málefnin eru öll í þjónustunni Leggðu góðu málefni lið  í Einkabanka og Fyrirtækjabanka Landsbankans sem gerir öllum viðskiptavinum Landsbankans kleift að leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Um er að ræða stærstu einstöku úthlutun Menningarsjóðs Landsbankans til þessa.

Þjónustan Leggðu góðu málefni lið  er sú fyrsta og eina sinnar tegundar hér á landi en markmiðið er að bjóða almenningi auðvelda leið til að gerast áskrifendur að stuðningi við gott málefni. Það sem gerir hana sérstaka er að á einum stað fæst yfirsýn yfir 75 góðgerðarfélög og hægt er að velja um mánaðarlegan stuðning eða staka greiðslu.

Úthlutun Menningarsjóðs Landsbankans til málefnanna 75 fer fram sama dag og Landsbankinn gefur út veglegt blað um Leggðu góðu málefni lið. Í blaðinu, sem dreift er á hvert heimili í landinu, er sögð saga tólf einstaklinga sem glíma við erfiðleika í lífi sínu, hver á sinn hátt. Landsbankinn tileinkar blaðið fólki sem helgar líf sitt því að styðja við bakið á þeim sem á þurfa að halda.

Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans og formaður stjórnar Menningarsjóðs Landsbankans, segir markmiðið með úthlutuninni og útgáfu blaðsins að vekja athygli á því hversu auðvelt það getur verið að leggja góðu málefni lið.

"Landsbankinn vill ganga á undan með góðu fordæmi og styrkir því öll málefnin í þjónustunni, 75 að tölu. Við gerum ekki upp á milli þeirra en fólk sem notar þjónustuna getur hins vegar valið sér áskrift að því málefni sem því er kærast. Leggðu góðu málefni lið er einstakt framtak og þekki ég ekki dæmi um sambærilega þjónustu í alþjóðlegum bankaheimi," segir Björgólfur sem afhenti hverjum fulltrúa hinna 75 góðu málefna ávísun að upphæð ein milljón króna við hátíðlega athöfn í Iðnó kl. 11 í dag.

Landsbankinn opnaði þjónustuna Leggðu góðu málefni lið í Einkabankanum 1. júlí á síðasta ári í tilefni af 120 ára afmæli bankans. Síðan þá hafa hundruð Íslendinga gerst áskrifendur að góðu málefni. Það er von bankans að sérstakt framlag sjóðsins nú verði landsmönnum hvatning til að finna svigrúm fyrir góð málefni í heimilisbókhaldinu. Það verði ekki svo frábrugðið því að greiða af húsinu eða bílnum og fyrir rafmagn og hita.


Nánar um Leggðu góðu málefni lið

Leggðu góðu málefni liðLeggðu góðu málefni lið er þýðingarmikil þjónusta í Einkabanka og Fyrirtækjabanka Landsbankans. Þjónustan gerir öllum viðskiptavinum Landsbankans kleift að leggja sitt af mörkum til samfélagsins á einfaldan og þægilegan hátt.

Hægt er að velja úr 75 góðgerðarfélögum og málefnum í Leggðu góðu málefni lið. Þú velur einfaldlega styrkupphæðina og yfir hversu langt tímabil þú vilt styrkja málefnið. Hver króna skilar sér til góðgerðarfélaganna og notendur bera engan kostnað við stuðning sinn. Með einfaldri aðgerð er svo hægt að hætta stuðningi ef svo ber undir.

Fyrst um sinn verða eingöngu góðgerðar- og mannúðarmálefni í þjónustu Landsbankans á Einkabankanum og Fyrirtækjabankanum. Landsbankinn áskilur sér rétt til að velja hvaða málefni fá aðgang að þjónustunni. Val góðgerðarfélaga í þjónustuna er ekki bundið viðskiptum við Landsbankann.

Á vefsvæðinu gottmalefni.is eru allar upplýsingar um þjónustuna Leggðu góðu málefni lið. Þar eru einnig viðtöl í fullri lengd við þá tólf einstaklinga sem segja sögu sína í sérblaði Landsbankans um Leggðu góðu málefni lið.

 

Til baka


Fréttasafn

Dagsetning Fyrirsögn
02.09.2010 Landsbankinn setur Límtré Vírnet ehf. í opið söluferli
31.08.2010 Síðasti afgreiðsludagur á Stöðvarfirði
31.08.2010 Landsbankinn sameinar afgreiðslu á Hellissandi og útibú á Ólafsvík
26.08.2010 Nýtt skipurit kynnt, allar framkvæmdastjórastöður auglýstar
25.08.2010 Umsókn um endurútreikning
20.08.2010 Framtakssjóður Íslands kaupir Vestia af Landsbankanum
18.08.2010 Áætlaður endurútreikningur fjarlægður úr Einkabanka
17.08.2010 Veruleg lækkun stýrivaxta aðkallandi
12.08.2010 Endurútreikningur kominn í Einkabankann
04.08.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. september 2010
23.07.2010 Lyfjaþjónustan kaupir dreifingarfyrirtækið Parlogis
21.07.2010 Allir vinna með Landsbankanum
19.07.2010 Vinningshafi í Fermingarleik Klassa
09.07.2010 Ávöxtun Íslenska lífeyrissjóðsins fyrri hluta árs 2010
07.07.2010 Landsbankinn býður fastar greiðslur og endurreikning lána
05.07.2010 Leiðrétting vegna fréttar Stöðvar 2 um fasteignaverðsspá Landsbankans
30.06.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. ágúst 2010
16.06.2010 Yfirlýsing Landsbankans vegna dóms Hæstaréttar í máli SP-Fjármögnunar
15.06.2010 Aukakrónur: Samstarfsaðilum fjölgar ört
03.06.2010 Fjórtán framúrskarandi námsmenn styrktir
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 151,95 153,06
USD Down 0,12 118,42 119,28
GBP Up 0,12 182,32 183,82
JPY Down 0,21 1,4038 1,4168
DKK 0,00 20,4050 20,5630
CHF Down 0,29 116,88 117,98
GVT Down 0,02 207,62 208,30
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 156,7588 02.09
USD 122,3388 02.09
GBP 188,4562 02.09
DKK 21,2132 02.09
SEK 16,7874 02.09
NOK 19,7886 02.09
CHF 121,7926 02.09
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 157,1482 03.09
USD 122,1733 03.09
GBP 187,8803 03.09
DKK 21,2592 03.09
SEK 17,0175 03.09
NOK 20,0087 03.09
CHF 121,5719 03.09