Fréttir

Fréttir og tilkynningar - 22. janúar 2010 15:52

Afkoma Landsbankans síðustu mánuði ársins 2008

Afkoma Landsbankans (NBI hf.) fyrir tímabilið 7. október - 31. desember 2008 liggur nú fyrir, en bankinn var stofnaður á grunni Landsbanka Íslands hf. þann 7. október. Taprekstur síðasta hluta árs 2008 skýrist af tapi tengdu peningamarkaðssjóðum Landsvaka. Rekstur bankans hefur gengið vel fyrsta heila starfsárið og ljóst að afkoma hans verður mun betri 2009 en hún var 2008.

Helstu niðurstöður 2008

  • Afkoma Landsbankans eftir skatta var neikvæð um 6,9 milljarða króna fyrir tímabilið 7. október - 31. desember 2008.
  • Þetta skýrist fyrst og fremst af tapi af markaðsskuldabréfum sem bankinn keypti af peningamarkaðssjóðum Landsvaka í október 2008, en það nam 38,2 milljörðum króna. Verðmæti skuldabréfanna er fært miðað við allar fyrirliggjandi upplýsingar um núverandi stöðu útgefenda bréfanna, en ekki eins og það var þann 31.12.2008. 
  • Hreinn gengishagnaður af gjaldeyrisjöfnuði að teknu tilliti til virðisrýrnunar, var 32,6 milljarðar króna á tímabilinu og skýrist annars vegar af gengisþróun krónunnar og hinsvegar af þróun gengis erlendra gjaldmiðla. 
  • Rekstrarkostnaður af reglulegri starfsemi var 4,1 milljarður króna. Hreinar þóknunartekjur námu 1,0 milljarði króna.
  • Rekstrarkostnaður tengdur yfirtöku eigna og skulda frá (gamla) Landsbanka Íslands hf. nam 3,2 milljörðum króna. Þarna er bæði færður beinn kostnaður við yfirtökuna og kostnaður sem Landsbankinn samþykkti að taka á sig sem hluta af samningaverðinu.
  • Heildareignir Landsbankans voru 1.037 milljarðar króna í árslok 2008 og hækkuðu um rúma 100 milljarða á tímabilinu. Þá hækkun má að stærstum hluta rekja til veikingar krónunnar.
  • Útlán til viðskiptavina námu á sama tíma 705 milljörðum króna, þar af voru um 170 milljarðar til einstaklinga. Um fjórðungur útlána Landsbankans er til sjávarútvegsfyrirtækja. 
  • Innlán viðskiptavina námu 431 milljörðum króna, þar af voru verðtryggð innlán um 93 milljarðar. Verðtryggingarjöfnuður bankans er samt jákvæður um 54 milljarða.
  • Innlán fjármálafyrirtækja voru 132 milljarðar króna. Erlendar fjármálastofnanir eiga stærstan hluta þeirra. Í áætlunum bankans er gert ráð fyrir að þessi innlán færist yfir í aðrar fjárfestingar í síðasta lagi þegar gjaldeyrishöftum verður aflétt af flutningi fjármuna af þessi tagi. Bankinn er vel búinn til að mæta þessu mögulega útflæði innlána.
  • Eigið fé bankans var 143 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall (Tier 1) var 13,0% í árslok 2008.
  • Heildarfjöldi stöðugilda var 1.182 í árslok 2008.

Traustur efnahagur - traustur rekstur

Ásmundur Stefánsson:

"Stofnefnahagur Landsbankans og efnahagsreikningur við árslok 2008 sýnir trausta eiginfjárstöðu. Eiginfjárhlutfall hans er þá 13% en samkvæmt lögum má það fara niður í 8%. Reksturinn er sömuleiðis traustur og ljóst er afkoman 2009 verður mun betri en árið 2008.

Þrátt fyrir að bankinn hafi átt á brattann að sækja að undanförnu þá hefur tryggð viðskiptavina við hann verið bæði þakkar- og eftirtektarverð. Með þátttöku allra starfsmanna hefur verið unnið ötullega að stefnumótun fyrir bankann með það að markmiði að byggja Landsbankann upp til framtíðar. Vöxtur og viðgangur bankans er samofin vexti og velgengni íslenskra fyrirtækja og heimila og þjóðfélagsins alls. Landsbankinn hefur nú þá stöðu sem hann þarf að hafa til þess að leika það stóra hlutverk sem honum er ætlað í endurreisn atvinnu- og efnahagslífs í landinu."

Ársreikningur 2008

Fréttatilkynning - prentvæn útgáfa

Til baka


Fréttasafn

Dagsetning Fyrirsögn
07.09.2010 Kreppunni hvergi nærri lokið?
02.09.2010 Landsbankinn setur Límtré Vírnet ehf. í opið söluferli
31.08.2010 Síðasti afgreiðsludagur á Stöðvarfirði
31.08.2010 Landsbankinn sameinar afgreiðslu á Hellissandi og útibú á Ólafsvík
26.08.2010 Nýtt skipurit kynnt, allar framkvæmdastjórastöður auglýstar
25.08.2010 Umsókn um endurútreikning
20.08.2010 Framtakssjóður Íslands kaupir Vestia af Landsbankanum
18.08.2010 Áætlaður endurútreikningur fjarlægður úr Einkabanka
17.08.2010 Veruleg lækkun stýrivaxta aðkallandi
12.08.2010 Endurútreikningur kominn í Einkabankann
04.08.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. september 2010
23.07.2010 Lyfjaþjónustan kaupir dreifingarfyrirtækið Parlogis
21.07.2010 Allir vinna með Landsbankanum
19.07.2010 Vinningshafi í Fermingarleik Klassa
09.07.2010 Ávöxtun Íslenska lífeyrissjóðsins fyrri hluta árs 2010
07.07.2010 Landsbankinn býður fastar greiðslur og endurreikning lána
05.07.2010 Leiðrétting vegna fréttar Stöðvar 2 um fasteignaverðsspá Landsbankans
30.06.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. ágúst 2010
16.06.2010 Yfirlýsing Landsbankans vegna dóms Hæstaréttar í máli SP-Fjármögnunar
15.06.2010 Aukakrónur: Samstarfsaðilum fjölgar ört
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 150,15 151,25
USD Up 0,47 118,03 118,89
GBP Up 0,06 182,17 183,69
JPY Up 0,57 1,4072 1,4204
DKK 0,00 20,1620 20,3180
CHF Down 0,09 116,42 117,52
GVT Up 0,17 206,18 206,86
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,0378 09.09
USD 120,8291 09.09
GBP 186,5772 09.09
DKK 20,8444 09.09
SEK 16,6146 09.09
NOK 19,6133 09.09
CHF 120,6111 09.09
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,2336 09.09
USD 120,8804 09.09
GBP 186,8122 09.09
DKK 20,8617 09.09
SEK 16,8377 09.09
NOK 19,6142 09.09
CHF 120,4458 09.09