Fréttir

Fréttir og tilkynningar - 16. desember 2009 10:28

Stofnhagsreikningur Landsbankans (NBI hf.) birtur

Heildareignir 944 milljarðar króna*

  • Stærsta fjármálastofnun landsins
  • Erlend langtímafjármögnun tryggð 
  • Samhentur hópur starfsfólks horfir til framtíðar
  • Góð dreifing útlánasafns

Samið hefur verið um að Landsbankinn (NBI hf.) gefi út 247 milljarða króna** skuldabréf til Landsbanka Íslands hf. Skuldabréfið er í erlendum gjaldmiðlum til 10 ára og, af því verða aðeins greiddir vextir fyrstu fimm árin. Með þessu er Landsbankanum tryggð erlend fjármögnun sem miklu mun skipta fyrir íslenskt efnahagslíf. Þá er gert ráð fyrir að gefin verði út hlutabréf til gamla bankans að fjárhæð 28 milljarðar króna sem svarar til 20% heildarhlutafjár Landsbankans.

Heildarfjárhæð skuldabréfsins og hlutabréfanna samsvarar mati Landsbankans á yfirteknum eignum umfram skuldir, en er lágmarksverðmæti eignanna að mati skilanefndar og ráðgjafa hennar. Fari svo að verðmæti yfirfærðra eigna reynist meira en mat Landsbankans gerir ráð fyrir mun bankinn gefa út viðbótarskuldabréf til þrotabús Landsbanka Íslands hf. sem gæti numið allt að 92 milljörðum króna, en þess í stað fengi ríkissjóður áðurnefnd hlutabréf að fjárhæð 28 milljarðar til baka. Óháður aðili mun annast lokamat á verðmæti eignanna í árslok 2012.

Eignir og skuldir

Stofnefnahagsreikningur Landsbankans er stærsti efnahagsreikningur þeirra þriggja banka sem endurreistir hafa verið. Heildareignir eru 944 milljarðar króna, þar af nema útlán til viðskiptavina bankans um 608 milljörðum króna, eiginfjárframlag íslenska ríkisins er 122 milljarðar, lausafé 39 milljarðar, hlutabréfaeign 30 milljarðar og skuldabréfaeign 24 milljarðar.

Útlánasafnið

Góð dreifing er á útlánasafni bankans, um 78% þeirra eru til fyrirtækja en um 22% til einstaklinga. Um 26% útlána eru til sjávarútvegsfyrirtækja, um 15% tengjast fasteignaviðskiptum, byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Rétt 9,4% lána eru til eignarhaldsfélaga og rúmlega 26% lána eru til annarra atvinnugreina.

Skuldir

Innlán viðskiptavina nema í stofnefnahagnum um 462 milljörðum króna. Innlán fjármálastofnana eru um 85 milljarðar króna og þá nemur upphæð skuldabréfs vegna yfirtöku lána úr þrotabúi Landsbanka Íslands hf. um 247 milljörðum króna.

Ásmundur Stefánsson bankastjóri segir:

"Landsbankinn verður í lykilhlutverki í endurreisn íslensks atvinnulífs næstu árin enda er hann stærsta fjármálastofnun landsins. Markaðshlutdeild bankans meðal fyrirtækja er um 40% og ríflega 27% meðal einstaklinga. Eignarhald hans er skýrt og erindi hans sömuleiðis. Erlend fjármögnun er tryggð með skuldabréfinu sem Landsbankinn gefur út til Landsbanka Íslands hf. Þetta er gríðarlega mikilvægur þáttur í rekstri Landsbankans og ekki síður fyrir íslenskt atvinnulíf í heild sinni, enda á það ekki kost á annarri erlendri fjármögnun sem stendur.

Landsbankinn byggir á arfleið Landsbanka Íslands hf. Fortíð bankans er engum dulin og þau mistök sem gerð hafa verið á næstliðnum árum hafa reynst samfélaginu öllu og sérstaklega starfsfólki bankans þungur baggi að bera. Þessi sterki hópur býr hinsvegar yfir þekkingu og reynslu sem hann sækir áratugi aftur í tímann og brýnt er að nýta vel þegar horft er fram á veginn."

Stofnefnahagur Landsbankans - skýrsla

Stofnefnahagur Landsbankans - glærukynnng

* Allar fjárhæðir eru miðaðar við Stofnefnahagsreikning móðurfélags, dagsettan 8. október 2008.

**  Nafnverð skuldabréfsins nemur 260 milljörðum króna, en það færist sem 247 milljarðar króna í reikningum bankans, vegna hagstæðra vaxtakjara.

Til baka


Fréttasafn

Dagsetning Fyrirsögn
02.09.2010 Landsbankinn setur Límtré Vírnet ehf. í opið söluferli
31.08.2010 Síðasti afgreiðsludagur á Stöðvarfirði
31.08.2010 Landsbankinn sameinar afgreiðslu á Hellissandi og útibú á Ólafsvík
26.08.2010 Nýtt skipurit kynnt, allar framkvæmdastjórastöður auglýstar
25.08.2010 Umsókn um endurútreikning
20.08.2010 Framtakssjóður Íslands kaupir Vestia af Landsbankanum
18.08.2010 Áætlaður endurútreikningur fjarlægður úr Einkabanka
17.08.2010 Veruleg lækkun stýrivaxta aðkallandi
12.08.2010 Endurútreikningur kominn í Einkabankann
04.08.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. september 2010
23.07.2010 Lyfjaþjónustan kaupir dreifingarfyrirtækið Parlogis
21.07.2010 Allir vinna með Landsbankanum
19.07.2010 Vinningshafi í Fermingarleik Klassa
09.07.2010 Ávöxtun Íslenska lífeyrissjóðsins fyrri hluta árs 2010
07.07.2010 Landsbankinn býður fastar greiðslur og endurreikning lána
05.07.2010 Leiðrétting vegna fréttar Stöðvar 2 um fasteignaverðsspá Landsbankans
30.06.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. ágúst 2010
16.06.2010 Yfirlýsing Landsbankans vegna dóms Hæstaréttar í máli SP-Fjármögnunar
15.06.2010 Aukakrónur: Samstarfsaðilum fjölgar ört
03.06.2010 Fjórtán framúrskarandi námsmenn styrktir
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 151,95 153,06
USD Down 0,13 118,42 119,28
GBP Up 0,13 182,32 183,82
JPY Down 0,21 1,4038 1,4168
DKK 0,00 20,4050 20,5630
CHF Down 0,26 116,88 117,98
GVT Down 0,02 207,61 208,29
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 156,7588 02.09
USD 122,3388 02.09
GBP 188,4562 02.09
DKK 21,2132 02.09
SEK 16,7874 02.09
NOK 19,7886 02.09
CHF 121,7926 02.09
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 157,1482 03.09
USD 122,1733 03.09
GBP 187,8803 03.09
DKK 21,2592 03.09
SEK 17,0175 03.09
NOK 20,0087 03.09
CHF 121,5719 03.09