Fréttir

Fréttir og tilkynningar - 11. mars 2010 10:31

Enginn munur á kaup- og sölugengi sjóða fram til 15. maí 2010

Skuldabréfasjóðir Landsvaka

Landsvaki býður upp á úrval skuldabréfasjóða sem henta vel til reglubundins sparnaðar. Einfalt er að kaupa og selja í sjóðunum og njóta viðskiptavinir þess að enginn munur er á kaup- og sölugengi í áskrift. Sjóðirnir hafa á síðustu mánuðum skilað betri ávöxtun en almennir innlánsreikningar.

Skuldabréfasjóðir fjárfesta aðallega í skuldabréfum útgefnum af aðilum sem fjármagna sig með útgáfu bréfanna (ríki, sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki). Tilgangur sjóðanna er að ávaxta fé sjóðfélaga og dreifa áhættu. Sjóðirnir kaupa skuldabréf á markaði samkvæmt skilgreindri fjárfestingastefnu og innheimta af þeim afborganir og vexti. Virði sjóðanna á hverjum tíma ræðst einnig af verðbreytingum á bréfunum þegar þau ganga kaupum og sölum á markaði. Styrkur hvers sjóðs ræðst af undirliggjandi eignum hans, það er fjárhagslegum styrk útgefenda þeirra skuldabréfa sem viðkomandi sjóður hefur fjárfest í.

Landsvaki býður upp á fjóra skuldabréfasjóði sem fjárfesta eingöngu í ríkistryggðum skuldabréfum og innlánum, Sparibréf löng, Sparibréf meðallöngSparibréf stutt og Reiðubréf ríkistryggð. Sjóðirnir hafa allir sömu fjárfestingarstefnu en mislangan meðallíftíma.

Landsvaki rekur einnig þrjá blandaða skuldabréfasjóði, Markaðsbréf löngMarkaðsbréf meðallöng og Markaðsbréf stutt. Um er að ræða sjóði sem fjárfesta að lágmarki 60% í verðbréfum útgefnum af íslenska ríkinu en einnig í skuldabréfum útgefnum af sveitarfélögum, fjármálastofnunum og öðrum fyrirtækjum. Sjóðirnir hafa allir sömu fjárfestingarstefnu en mislangan meðallíftíma.

Hlutabréfasjóðir Landsvaka

Hlutabréfasjóðir fjárfesta fyrst og fremst í hlutabréfum á markaði samkvæmt fyrirfram kunngerðri fjárfestingastefnu og fá greiddan af þeim arð eftir atvikum. Ávöxtun sjóðsins á hverjum tíma ræðst af arðgreiðslum og af verðhækkunum á eignum sjóðsins. Styrkur hvers sjóðs ræðst af undirliggjandi eignum hans, fjárhagslegum styrk útgefenda þeirra verðbréfa sem sjóðurinn hefur fjárfest í og þeim fjölmörgu þáttum sem áhrif geta haft á verð hlutabréfa.

Landsvaki rekur þrjá hlutabréfasjóði. Annars vegar er um að ræða vísitölusjóðinn Nordic 40 sem líkir eftir hlutabréfavísitölunni Nordic 40 og gerir fjárfestum þannig kleift ná meðalávöxtun þeirra hlutabréfa sem mynda viðkomandi vísitölu að frádregnum kostnaði.

Hins vegar er um ræða hlutabréfasjóði með virkri stýringu þar sem sjóðstjóri velur eignir inn í sjóðinn innan ramma fjárfestingastefnu hans. Markmið slíkra sjóða er að ná betri ávöxtun en viðmið. Sjóðir Landsvaka með virkri stýringu eru Úrvalsbréf, sem fjárfestir í hlutabréfum skráðum í Kauphöll Íslands og Global Equity Fund sem fjárfestir aðallega í erlendum hlutabréfasjóðum og í kauphallarsjóðum (ETF).

Enginn munur er á kaup- og sölugengi sjóða fram til 15. maí 2010.

Landsvaki

Landsvaki er sjálfstætt stafrandi fjármálafyrirtæki sem annast rekstur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða. Félagið starfar sem rekstrarfélag samkvæmt starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu. Landsvaki hf. er í eigu Landsbankans (NBI hf.) sem jafnframt er vörslufélag sjóðanna. Sjá nánari upplýsingar um Landsvaka á www.landsvaki.is.

Landsbankinn annast alla sölu í sjóði Landsvaka. Nánari upplýsingar um sjóðina má finna í útboðslýsingum þeirra og hjá Fjármálaráðgjöf Landsbankans í síma 410 4040. Viðskiptavinum er bent á að kynna sér vel útboðslýsingar sjóða áður en fjárfest er í þeim en þar er meðal annars að finna ítarlega umfjöllun um þá áhættu sem fylgir í fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða.

Til baka


1 2 3 4 5 6 7 8 9 10