Reglur Landsbankans

Landsbankinn hefur sett sér reglur og ferla til að tryggja eftirfylgni við þau lög og reglur sem um starfsemi bankans gilda. Reglur Landsbankans mæla fyrir um almennar skyldur starfsmanna bankans með það að markmiði að stuðla að heiðarleika, réttsýni og sanngirni í viðskiptum og efla traust viðskiptavina og almennings á Landsbankanum.

Bankaráð hefur sett sér starfsreglur sem kveða á um verkefni og skyldur bankaráðs Landsbankans. Reglurnar eru settar með hliðsjón af leiðbeinandi tilmælum Fjármálaeftirlitsins nr. 4/2006.

Í starfsreglum bankaráðs er m.a. kveðið á um kjör bankaráðs, fundi þess, skyldur bankaráðs og samskipti við hluthafa, ráðningarsamning við bankastjóra og innri endurskoðanda, hagsmunatengsl og önnur verkefni bankaráðs. Þá er kveðið á um gerð ársreiknings, endurskoðendur og nefndr bankaráðs, þ.e. endurskoðunar- og áhættunefnd og starfskjaranefnd.

Starfsreglur bankaráðs

Bankaráð Landsbankans

Bankaráð Landsbankans hefur sett sér almennar útlána- og áhættureglur. Bankastjóri ber ábyrgð gagnvart bankaráði á útlánum bankans og ábyrgðum. Þá ber bankastjóri ábyrgð á öðrum áhættuþáttum Landsbankans, þ.m.t. markaðs- og rekstraráhættu. Á grundvelli framangreindra reglna bankaráðs Landsbankans hefur bankinn m.a. sett ítarlegri útlánareglur, innri viðmiðunarreglur um stórar áhættuskuldbindingar og hámark heildaráhættu, reglur um samsöfnun gagna og skýrslugjöf á samstæðugrundvelli, reglur um markaðsáhættu og reglur um rekstraráhættu.

Starfs- og siðareglur

Bankaráð Landsbankans hefur sett sér almennar útlána- og áhættureglur . Bankastjóri ber ábyrgð gagnvart bankaráði á útlánum bankans og ábyrgðum. Þá ber bankastjóri ábyrgð á öðrum áhættuþáttum Landsbankans, þ.m.t. markaðs- og rekstraráhættu. Á grundvelli framangreindra reglna bankaráðs Landsbankans hefur bankinn m.a. sett ítarlegri útlánareglur, innri viðmiðunarreglur um stórar áhættuskuldbindingar og hámark heildaráhættu, reglur um samsöfnun gagna og skýrslugjöf á samstæðugrundvelli, reglur um markaðsáhættu og reglur um rekstraráhættu.

Reglur vegna hagsmunaárekstra

Landsbankanum ber að gera allar tiltækar ráðstafanir til að greina hvers kyns hagsmunaárekstra og koma þannig í veg fyrir að þeir skaði hagsmuni viðskiptavina bankans. Í því skyni hefur bankinn m.a. sett sérstakar reglur um hagsmunaárekstra, reglur um aðskilnað starfsviða (Kínamúra) sem eiga að koma í veg fyrir að trúnaðarupplýsingar streymi á milli mismunandi deilda, reglur um gjafir, hvatagreiðslur og boðsferðir, reglur um þátttöku starfsmanna í atvinnurekstri og reglur um verðbréfaviðskipti starfsmanna.

Reglur Landsbankans um verðbréfaviðskipti starfsmanna
Útdráttur úr reglum um hagsmunaárekstra

Reglur um verðbréfaviðskipti

Reglur Landsbankans um markaðssvik kveða á um bann við hvers kyns markaðsmisnotkun, innherjasvikum og öðrum brotum skv. lögum um verðbréfaviðskipti.

Núgildandi lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 byggja á tilskipun Evrópusambandsins um markaði fyrir fjármálagerninga, svokallaðri MiFID-tilskipun. Tilgangur tilskipunarinnar var sá að setja samræmdar reglur um neytendavernd fjárfesta og skapa sameiginlegan innri markað með fjármálaþjónustu. Lögð er áhersla á aukið eftirlit, faglega framkvæmd og upplýsingagjöf. Landsbankinn hefur sett sér reglur til að uppfylla að fullu þær kröfur sem tilskipunin og lög um verðbréfaviðskipti gera.

Um MiFID

Reglur vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Landsbankinn hefur sett sér reglur um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka sem byggja bæði á íslenskum lögum og alþjóðlegum reglum og leiðbeiningum. Markmið reglnanna er að leitast við að hindra að rekstur og starfsemi Landsbankans eða dótturfélaga hans verði notuð til að þvætta fjármuni eða fjármagna hryðjuverk.

Reglur Landsbankans um áreiðanleikakönnun viðskiptavina (KYC)
Reglur Landsbankans um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
USA Patriot Act Certification
AML Questionnaire (NBI hf. Answer to Questionnaire)
Vottorð frá fyrirtækjaskrá á íslensku (Certificate of incorporation)
Vottorð frá fyrirtækjaskrá á ensku (Certificate of incorporation)
Samþykktir fyrir NBI hf. á íslensku / Articles of Association
Ársreikningur / Annual report

Nánari upplýsingar um varnir gegn peningaþvætti

Aðgerðir vegna greiðsluerfiðleika fyrirtækja

Í ljósi þeirra efnahagserfiðleika, sem nú ríkja í þjóðfélaginu, liggur fyrir að margir viðskiptavina Landsbankans eiga í erfiðleikum með að standa við skuldbindingar sínar við bankann. Oft er um að ræða lífvænleg fyrirtæki sem veita mörgum atvinnu. Rikisstjórnin hefur lýst yfir vilja til þess að fjármálafyrirtæki kappkosti að bjarga þeim fyrirtækjum sem mögulegt er til að tryggja sem flestum atvinnu. Í samræmi við áætlun ríkisstjórnarinnar sem kynnt var 2. desember 2008 hefur Landsbankinn sett viðmið varðandi aðgerðir fyrir fyrirtæki sem eiga í greiðsluerfiðleikum.

Aðgerðir vegna greiðsluerfiðleika fyrirtækja

Reglur um meðferð kvartana

Tilgangur reglna og ferla Landsbankans um meðferð kvartana er að tryggja að kvörtunum viðskiptavina verði ávallt svarað og að unnið verði úr kvörtunum, m.a. með þeim hætti að leitast við að koma í veg fyrir að mistök endurtaki sig. Þá er tilgangur reglna þessara að tryggja að allar kvartanir og svör bankans við þeim verði vistuð og skráð í miðlægan grunn.

Hægt er að senda kvartanir á .

Leiðbeiningar um meðferð kvartana

Reglur um hljóðritun símtala

Tilgangur reglna um hljóðritun símtala er sá að tryggja rétta framkvæmd á hljóðritun símtala milli starfsmanna bankans og viðskiptavina hans í þeim tilvikum sem hún fer fram. Þá er reglunum ætlað að tryggja rétta framkvæmd á vistun gagna ásamt því að takmarka aðgang að vistuðum gögnum.

Símtæki starfsmanna í markaðsviðskiptum, fjárstýringu, eigin viðskiptum, eignastýringu (Landsvaka hf.), einkabankaþjónustu, fjármálaráðgjöf, fyrirtækjaráðgjöf, vörslu- og viðskiptaumsjón, tiltekinna starfsmanna á fyrirtækjasviði, þjónustveri og símar starfsmanna í útibúum sem sinna ráðgjöf varðandi sölu fjármálagerninga kunna að vera hljóðrituð. Komi upp ágreiningur um efni samtals milli viðskiptavinar og starfsmanns geta viðskiptavinir óskað eftir því að fá að hlusta á símtal í bankanum. Afrit af símtölum eru ekki afhent viðskiptavinum en viðskiptavinir geta óskað eftir útskrift símtala. Gjald er tekið fyrir vinnu við útskrift samkvæmt gjaldskrá bankans.

Reglur um upplýsingaöryggi

Tilgangur reglna um upplýsingaöryggi er ætlað að tryggja trúnað upplýsinga og vernda hagsmuni Landsbankans, viðskiptavina hans og starfsmanna. Reglurnar eiga að minnka hættu á að notkun upplýsinga og upplýsingakerfa bankans leiði til tjóns fyrir bankann, starfsmenn eða viðskiptavini.

Reglunum er ætlað að stuðla að því að öll notkun á upplýsingum og upplýsingakerfum Landsbankans samræmist almennum góðum starfsvenjum hvort sem notkunin fer fram í húsakynnum bankans eða utan, s.s. við vinnu heima hjá starfsmanni.

Reglur um persónuvernd

Markmið reglna um persónuvernd er að stuðla að því að Landsbankinn fari með persónuupplýsingar í samræmi við grundvallarsjónarmið um persónuvernd og friðhelgi einkalífs sem koma m.a. fram í lögum nr. 77/2000, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Reglurnar gilda um sérhverja rafræna vinnslu persónuupplýsinga og handvirka vinnslu persónuupplýsinga ef upplýsingarnar eiga að verða hlut af skrá.

Reglur um undirritunarheimildir

Reglur Landsbankans um undirritunarheimildir fela í sér skilgreiningu á því hverjir hafa umboð til þess að skrifa undir skjöl og aðra löggerninga sem skuldbinda bankann og hversu víðtækt slíkt umboð er.

Undirritunarheimildir

Fyrirvari

Fyrirvari vegna tölvupóstsendinga

Kynntu þér málið

  • Regluvörður er Þórður Örlygsson.
  • Sendu tölvupóst á eða hringdu í síma 410 4000.

landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 151,95 153,06
USD Down 0,13 118,42 119,28
GBP Up 0,13 182,32 183,82
JPY Down 0,14 1,4038 1,4168
DKK 0,00 20,4050 20,5630
CHF Down 0,24 116,88 117,98
GVT Down 0,02 207,62 208,30
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 156,7588 02.09
USD 122,3388 02.09
GBP 188,4562 02.09
DKK 21,2132 02.09
SEK 16,7874 02.09
NOK 19,7886 02.09
CHF 121,7926 02.09
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 157,1482 03.09
USD 122,1733 03.09
GBP 187,8803 03.09
DKK 21,2592 03.09
SEK 17,0175 03.09
NOK 20,0087 03.09
CHF 121,5719 03.09