Landsbankinn ætlar sér stórt hlutverk í endurreisn íslensks efnahagslífs. Þess vegna býður bankinn fyrirtækjum ýmis úrræði með það fyrir augum að styrkja fjárhagsstöðu þeirra.
Bankinn hefur sett sér skýrar leiðbeiningar um aðgerðir fyrir fyrirtæki,
sem standa frammi fyrir greiðsluerfiðleikum, og fylgir jafnframt
sameiginlegum reglum fjármálafyrirtækja um fjárhagslega
endurskipulagningu fyrirtækja.
Nú geta fyrirtæki með lán í erlendri mynt sótt um 25% höfuðstólslækkun gegn því að þeim sé breytt í óverðtryggð eða verðtryggð lán í íslenskum krónum. Tekið er mið af stöðu lána 30. apríl síðastliðinn.
Nánar
Sértækar lausnir
Landsbankinn getur beitt sértækum úrræðum við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja ef þau eru talin rekstrarhæf til lengri tíma.
Hægt er að fá frestun á hluta eða öllum afborgunum lána í 12-24 mánuði. Miðað er við að afborganir séu greiddar eins og kostur er og að skuldsetning verði í myntum sem endurspegla tekjur fyrirtækisins.
Nánar
Miðað er við að skuldir fyrirtækja séu færðar í 100% af heildarvirði eða endurmetnu eignavirði ef eigandi greiðir 10% inn á lán fyrirtækis þannig að skuldir verða 90% af heildarvirði.
Nánar
Miðað er við að skuldir fyrirtækja séu færðar í 115% af heildarvirði eða endurmetnu eignavirði ef eigandi leggur ekki til lágmarks eigið fé.
Nánar