Fasteignagrunnur

Reikningur fyrir þá sem vilja spara fyrir húsnæðiskaupum

Fasteignagrunnur er sparireikningur í boði fyrir viðskiptavini, 15 til 35 ára í reglubundnum sparnaði. Reikningurinn er sniðinn að þörfum viðskiptavina sem vilja byrja að spara fyrir húsnæðiskaupum. Fasteignagrunnur er í boði bæði óverðtryggður með lágmarksbindingu til 12 mánaða og verðtryggður með lágmarksbindingu til 36 mánaða.


Eiginleikar Fasteignagrunns

  • Mótframlag við reglubundinn sparnað.
  • Innflutningsgjöf við fasteignakaup.
  • Engin þjónustugjöld, innlausnargjöld eða aðrar þóknanir.
  • Hægt er að taka einu sinni út af Fasteignagrunni, fyrst við 18 ára aldur.
  • Úttekt fyrst möguleg við 18 ára aldur.
  • Loka þarf reikningnum í kjölfar úttektar.
  • Hægt er að stofna einn reikning fyrir hvern viðskiptavin.

Mótframlag

Viðskiptavinir sem uppfylla skilyrði um 5.000 kr. reglubundinn sparnað á mánuði fá mótframlag í lok fyrstu tveggja sparnaðaráranna. Mótframlagið nemur meðaltals sparnaðarupphæð í reglubundnum sparnaði á árinu, að hámarki 10.000 kr. á hvoru sparnaðarári.

Við kaup á fasteign

Viðskiptavinir sem nýta innstæðu sína til fasteignakaupa, skila inn samþykktu kauptilboði í eigin nafni og taka íbúðalán hjá Landsbankanum fá innflutningsgjöf að upphæð 20.000 kr., eiga möguleika á 10% hærra veðsetningarhlutfalli á virkum markaðssvæðum, fá 50% afslátt af lántökugjaldi og 50% afslátt af Heimilisverndartryggingu hjá Verði fyrsta árið.

 

Reiknivél: fasteignagrunnur

%

ár

kr.

kr.

Kynntu þér málið