Lán

Landsbankinn býður fjölbreytta lánamöguleika sem er ætlað að mæta ólíkum þörfum viðskiptavina. Komdu við í næsta útibúi Landsbankans og fáðu aðstoð starfsfólks við að meta hvaða lánamöguleikar henta þér best.


Yfirdráttarlán

    Hægt er að fá yfirdráttarlán á debet- og tékkareikninga hjá Landsbankanum. Yfirdráttarlán er sveigjanlegt lánsform sem hentar vel til að mæta tímabundinni fjárþörf eða fjármagna skammtímasveiflur í útgjöldum.

Verðtryggð íbúðalán

    Lán til íbúðakaupa eða nýbygginga eru fyrir einstaklinga sem hafa launareikning sinn hjá bankanum. Lánin eru verðtryggð og veitt gegn fyrsta veðrétti í fasteign.

      

Óverðtryggð íbúðalán

    Óverðtryggð íbúðalán í íslenskum krónum henta þeim viðskiptavinum sem vilja greiða lán sín hraðar niður og forðast uppsöfnun verðbóta á höfuðstól. Lánað er til fasteigna-kaupa, endurfjármögnunar á eldri lánum, nýbyggingar eða endurbóta á fasteign.

Framkvæmdalán vegna nýbygginga

    Framkvæmdalán vegna nýbygginga eru fyrir þá viðskiptavini Landsbankans sem vantar fjármagn til að koma íbúðarhúsnæði sínu á það byggingarstig að heimilt sé að veðsetja eignina fyrir Íbúðaláni eða Fasteignaláni.
     

Lausnir fyrir heimilið

    Landsbankinn býður upp á mörg úrræði fyrir heimili sem eiga við greiðsluerfiðleika að etja. Við aðstoðum þig við að velja lausn sem kemur til móts við þínar þarfir.

Kynntu þér málið

  • Hringdu í Ráðgjafa- og þjónustuver Landsbankans í síma 410 4000 (opið virka daga milli 8 og 19 og á laugardögum frá 11-15)
  • Sendu okkur fyrirspurn eða tölvupóst á netfangið og við svörum við fyrsta tækifæri
  • Fáðu aðstoð og ráðgjöf í næsta útibúi Landsbankans

landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 151,95 153,06
USD Down 0,13 118,42 119,28
GBP Up 0,13 182,32 183,82
JPY Down 0,21 1,4038 1,4168
DKK 0,00 20,4050 20,5630
CHF Down 0,26 116,88 117,98
GVT Down 0,02 207,61 208,29
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 156,7588 02.09
USD 122,3388 02.09
GBP 188,4562 02.09
DKK 21,2132 02.09
SEK 16,7874 02.09
NOK 19,7886 02.09
CHF 121,7926 02.09
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 157,1482 03.09
USD 122,1733 03.09
GBP 187,8803 03.09
DKK 21,2592 03.09
SEK 17,0175 03.09
NOK 20,0087 03.09
CHF 121,5719 03.09