Landsbankinn býður fjölbreytt úrval greiðslukorta, debet- og kreditkorta. Eiginleikar kortanna eru ólíkir en allir ættu að finna greiðslukort sem hæfir þörfum þeirra.
Viðskiptavinir með Aukakrónusöfnun safna fríðindum af allri innlendri verslun með kreditkorti, fá viðbótarsöfnun með viðskiptum við samstarfsaðilana auk þess sem viðskiptavinir í Vörðu og Námu fá Aukakrónur fyrir ýmis viðskipti við Landsbankann.
Debetkort sameina kosti tékkareikninga og sparisjóðsbóka. Þau nýtast vel sem staðgreiðslukort, til að taka fé úr hraðbönkum eða til að greiða reikninga í bönkum eða sparisjóðum.
Í samvinnu við VISA Ísland býður Landsbankinn upp á margar ólíkar tegundir kreditkorta, hvert með mismunandi þjónustu og fríðindum.
Í samvinnu við MasterCard á Íslandi býður Landsbankinn tvær gerðir af greiðslukortum með mismunandi þjónustu og fríðindum.