Vegvísir - greining og markaðir - 8. desember 2004 16:14
KB banki selur hlut í Baugi Group

KB banki hefur selt 8,26%
hlutafjár í Baugi Group að því er fram kemur í tilkynningu
frá bankanum í dag en kaupandi hlutanna er fjárfestingarfélag
í eigu Kevin Stanford, Magnúsar Ármanns og Sigurðar
Bollasonar. Eftir söluna á KB banki 11,5% hlut í Baugi. Fram
kemur í tilkynningunni að innleystur söluhagnaður bankans
vegna þessara viðskipta nemi um 1 ma.kr. Í
nýlegu verðmati á KB banka var dulin eign í Baugi metin á 3,6
ma.kr. en samkvæmt útreikningum Greiningardeildar, miðað við
framangreind viðskipti, þá er dulin eign í Baugi um 2,7 ma.kr. ef
eftirstandandi eignarhlutur yrði seldur á sama verði.
Til baka