Fréttir

Fréttir og tilkynningar - 23. júlí 2010 15:51

Lyfjaþjónustan kaupir dreifingarfyrirtækið Parlogis

Opnu söluferli á Parlogis ehf., sem hófst 10. maí 2010, er nú lokið með undirritun sölusamnings á öllu hlutafé félagsins. Seljendur hlutabréfanna eru Vestia ehf. (80%) og Atorka Group hf. (20%), en kaupandinn er Lyfjaþjónustan ehf. Kaupverð fyrir allt hlutafé félagsins samkvæmt sölusamningi eru 250 milljónir króna, staðgreitt. Samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Seljendur eru ánægðir með þann áhuga sem fjárfestar sýndu félaginu. Alls fengu 12 aðilar ítarleg kynningargögn um Parlogis og á grundvelli þeirra lögðu 4 aðilar fram óskuldbindandi tilboð. Í framhaldi af því fengu þessir bjóðendur aðgang að gagnaherbergi til að framkvæma áreiðanleikakönnun á félaginu, áður en lagt var fram bindandi tilboð. Söluferlinu lauk eins og áður segir með undirritun kaupsamnings við Lyfjaþjónustuna.

Parlogis á sér langa sögu sem eitt helsta dreifingarfyrirtæki á vörum til íslensks heilbrigðiskerfis. Markaðshlutdeild í dreifingu lyfja er yfir 30%. Fyrirtækið býr yfir 4.000 fermetra sérhæfðu lagerhúsnæði, nútíma  upplýsingakerfum, þróuðum vinnuferlum og sérhæfðu starfsfólki. Rekstur Parlogis er í ágætu horfi og hafa stjórnendur og starfsmenn fyrirtækis náð góðum árangri í erfiðu árferði en fyrirtækið varð fyrir miklum skakkaföllum í tengslum við efnahagshrunið og gengisfall krónunnar. Lánveitendur félagsins, Landsbankinn og Atorka brugðust við þeim áföllum með því að breyta hluta skulda í hlutafé og sköpuðu félaginu þannig nýjan rekstrargrundvöll. Salan nú á öllu hlutafé í Parlogis er þannig síðasti hluti velheppnaðs endurreisnarferlis góðs og rekstrarhæfs fyrirtækis.

Steinþór Baldursson, framkvæmdastjóri Vestia, sagði af þessu tilefni: "Parlogis er fyrsta félagið sem selt er úr eignasafni Vestia. Með sölunni hefur Vestia náð að uppfylla meginmarkmið sín um að hámarka endurheimtur við ráðstöfun eigna, lágmarka eignarhaldstíma og gæta jafnræðis og gagnsæis við söluferli. Þessi góði árangur gefur ennfremur byr í seglin við undirbúning á áframhaldandi sölu á eignum félagsins." Kristján Jóhannsson, stjórnarformaður Lyfjaþjónustunnar ehf., kvaðst vera "ánægður með kaupin og hlakka til að vinna að frekari stefnumótun og framþróun félagsins með stjórnendum og starfsfólki þess".

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hafði umsjón með söluferlinu af hálfu seljenda. Upplýsingar um fyrirkomulag söluferla eigna Vestia sem og upplýsingar um eignarhald þess á hlutafé í öðrum atvinnufyrirtækjum, eru aðgengilegar á vefsíðu Vestia, www.vestia.is.




Um Parlogis

Parlogis dregur nafn sitt af "Partner in Logistics", sem endurspeglar vel tilgang félagsins. Parlogis á sér langa sögu sem eitt helsta dreifingarfyrirtæki á vörum til íslensks heilbrigðiskerfis. Þjónustan sem fyrirtækið veitir er grunn dreifingarþjónusta í samræmi við strangar gæðakröfur innlendra eftirlitsaðila sem og lyfjaframleiðenda auk margs konar virðisaukandi þjónustu. Markaðshlutdeild í dreifingu lyfja er yfir 30%. Fyrirtækið býr yfir 4.000 fermetra sérhæfðu lagerhúsnæði, nútíma upplýsingakerfum, þróuðum vinnuferlum og sérhæfðu starfsfólki. Starfsmenn Parlogis eru 55 talsins.  Framkvæmdastjóri Parlogis er Guðný Rósa Þorvarðardóttir.

Um Lyfjaþjónustuna

Lyfjaþjónustan er kaupandi alls hlutafjár Parlogis.  Aðstandendur og eigendur félagsins eru í hópi núverandi eigenda  Icepharma, sem er sölu- og markaðsfyrirtæki fyrir heilsutengdar vörur og íþróttavörur frá alþjóðlegum birgjum. Parlogis verður áfram rekið sem sjálfstætt félag, og mun kappkosta að veita núverandi og nýjum viðskiptavinum jafngóða eða betri þjónustu hér eftir sem hingað til.

Um Vestia

Eignarhaldsfélagið Vestia er dótturfyrirtæki Landsbankans. Félagið ber ábyrgð á umsýslu og ráðstöfun eignarhalds í atvinnufyrirtækjum sem bankinn hefur eignast í kjölfar endurskipulagningar sem felur það í sér að kröfum bankans er breytt í hlutafé eða eignarhluti sem af öðrum orsökum þykir rétt að félagið fari með.

Um Atorku

Atorka er að fullu í eigu kröfuhafa í framhaldi af nauðasamningum, sem tryggðu að Atorka er nú vel í stakk búið til að styðja við eignir sínar og hámarka endurheimtur fyrir lánardrottna. Promens er langstærsta og verðmætasta eign Atorku. Félagið á einnig hlut í skráðum eignum á erlendum mörkuðum, þ.m.t. Interbulk Group PLC, Clyde Process Solutions, NWF og Asia Environment.

Til baka


Fréttasafn

Dagsetning Fyrirsögn
07.09.2010 Kreppunni hvergi nærri lokið?
02.09.2010 Landsbankinn setur Límtré Vírnet ehf. í opið söluferli
31.08.2010 Síðasti afgreiðsludagur á Stöðvarfirði
31.08.2010 Landsbankinn sameinar afgreiðslu á Hellissandi og útibú á Ólafsvík
26.08.2010 Nýtt skipurit kynnt, allar framkvæmdastjórastöður auglýstar
25.08.2010 Umsókn um endurútreikning
20.08.2010 Framtakssjóður Íslands kaupir Vestia af Landsbankanum
18.08.2010 Áætlaður endurútreikningur fjarlægður úr Einkabanka
17.08.2010 Veruleg lækkun stýrivaxta aðkallandi
12.08.2010 Endurútreikningur kominn í Einkabankann
04.08.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. september 2010
23.07.2010 Lyfjaþjónustan kaupir dreifingarfyrirtækið Parlogis
21.07.2010 Allir vinna með Landsbankanum
19.07.2010 Vinningshafi í Fermingarleik Klassa
09.07.2010 Ávöxtun Íslenska lífeyrissjóðsins fyrri hluta árs 2010
07.07.2010 Landsbankinn býður fastar greiðslur og endurreikning lána
05.07.2010 Leiðrétting vegna fréttar Stöðvar 2 um fasteignaverðsspá Landsbankans
30.06.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. ágúst 2010
16.06.2010 Yfirlýsing Landsbankans vegna dóms Hæstaréttar í máli SP-Fjármögnunar
15.06.2010 Aukakrónur: Samstarfsaðilum fjölgar ört
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 150,15 151,25
USD Up 0,22 117,94 118,80
GBP Up 0,08 182,86 184,38
JPY Up 0,28 1,4052 1,4184
DKK Up 0,01 20,1640 20,32
CHF Up 0,15 116,56 117,66
GVT Up 0,08 206,01 206,69
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,1993 08.09
USD 120,6048 08.09
GBP 184,7484 08.09
DKK 20,8660 08.09
SEK 16,5519 08.09
NOK 19,6102 08.09
CHF 120,4468 08.09
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,2336 09.09
USD 120,8804 09.09
GBP 186,8122 09.09
DKK 20,8617 09.09
SEK 16,8377 09.09
NOK 19,6142 09.09
CHF 120,4458 09.09