Fréttir

Fréttir og tilkynningar - 7. júlí 2010 14:08

Landsbankinn býður fastar greiðslur og endurreikning lána

  • Öllum einstaklingum sem tekið hafa fasteignalán í erlendri mynt með veði í íbúðarhúsnæði býðst að greiða lága fasta mánaðarlega greiðslu, þar til skorið verður úr um réttarágreining fyrir dómstólum.
  • Föst mánaðarleg greiðsla verður 5.000 krónur af hverri milljón til 1. nóvember. Greiðslubyrðin miðast við upprunalegan höfuðstól lánanna.
  • Hluti fasteignalána í erlendri mynt verður endurreiknaður samkvæmt dómi Hæstaréttar og tilmælum Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins. Höfuðstóll lækkar verulega.
  • Betri réttur neytenda stendur óhaggaður.

Fastar greiðslur til 1. nóvember

Öllum einstaklingum sem eru með fasteignalán í erlendri mynt til lengri tíma en 5 ára, með reglulegum afborgunum og veð í íbúðarhúsnæði býðst nú að greiða lága mánaðarlega greiðslu fram til 1. nóvember 2010.

Greiðslurnar miðast við 5.000 krónur á mánuði fyrir hverja milljón sem getur þýtt verulega lækkun á greiðslubyrði á meðan á þessum tíma stendur.

Miðað er við upprunalegan höfuðstól láns. Þannig yrði greiðsla af láni sem upphaflega var 10 milljónir króna, 50.000 krónur á mánuði.

Þetta úrræði er hluti af almennum úrræðum bankans fyrir einstaklinga í greiðsluerfiðleikum og þarf að sækja sérstaklegan um það fyrir 30. september. Hægt verður að sækja um á netinu, eða útibúum Landsbankans.

Viðskiptavinum banka og sparisjóða bjóðast sömu kjör þegar kemur að föstum greiðslum af lánum og hafa viðræður um þau farið fram með leyfi Samkeppniseftirlitsins. Samkeppniseftirlitið hefur fallist á að þessi kjör megi allir bjóða til 1. nóvember, en eftir þann tíma verður að sækja um framlengingu hafi dómstólar þá ekki eytt óvissu um álitamál.

Hluti fasteignalána einstaklinga endurreiknaður

Eftir athugun á lánasafni Landsbankans, telur bankinn að dómurinn taki til tiltekinna skuldabréfa vegna fasteignalána einstaklinga. Sú niðurstaða er byggð á mati lögfræðinga bankans sem og lögfræðiáliti sem aflað hefur verið frá lögmönnum utan hans.

Í tilmælum FME og Seðlabanka til fjármálafyrirtækja frá 30. júní segir orðrétt að þegar reiknaðir eru vextir af lánum sem að mati fjármálafyrirtækis innihalda óskuldbindandi gengistryggingarákvæði, skuli ,,...í stað gengistryggingar og erlends vaxtaviðmiðs miða við vexti sem Seðlabanki Íslands ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum á nýjum almennum óverðtryggðum útlánum eða ef verðtrygging er valin lægstu vöxtum á nýjum almennum verðtryggðum útlánum og beitt er þegar óvissa ríkir um lánakjör sbr. 18. og 4. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, nema aðilar semji um annað."

Lánum þeirra einstaklinga sem fengu slík skuldabréf verður breytt 1. september til samræmis við tilmæli FME og Seðlabankans.

Viðskiptavinir Landsbankans geta valið

Óski lánþegar með fyrrnefnd skuldabréf ekki eftir því að lán þeirra verði endurreiknuð, er þeim bent á að snúa sér til bankans fyrir 15. ágúst.

Þeir geta þá valið um að halda hinu erlenda láni sínu og greiða af því á sama hátt og áður telji þeir það hagstæðara, eða óskað eftir því að greiða tímabundið fastar greiðslur á sama hátt og greint var frá hér að ofan.

Samkvæmt bráðabirgðaútreikningum Landsbankans lækkar höfuðstóll þeirra fasteignalána sem falla undir dóminn um 25% - 40%, breytilegt eftir því hvenær lán voru tekin og í hvaða mynt. Dæmi eru um lægri lækkun höfuðstóls lána sem tekin voru eftir mestu gengisfellingarnar, en einnig dæmi um mun meiri lækkun í þeim myntum sem þróast hafa á versta veg fyrir lántaka.

Rétt er að vekja athygli á því að óvissa ríkir um skattaleg áhrif þessara breytinga.

Næstu vikur

Landsbankinn mun þegar hefjast handa við úrvinnslu og endurreikning lána og framsetningu nýrrar greiðsluáætlunar eftir því sem við á. Slíkt getur tekið nokkrar vikur og biður bankinn viðskiptavini að sýna biðlund vegna þessa. Samkvæmt tilmælum FME og Seðlabanka skal endurreikningi lána lokið fyrir 1. september nk.

Viðskiptavinir sem þegar hafa greitt upp lán sem tilmælin taka til, munu fá endurgreitt það sem ofgreitt hefur verið. Viðskiptavinum sem þegar hafa þegið einhver af greiðsluerfiðleikaúrræðum bankans, en telja nú að þau eigi ekki við eða að þau þurfi að endurskoða, er bent á að snúa sér til bankans.

Öllum viðskiptavinum sem þessi mál varða, verður á næstu dögum sent bréf með leiðbeiningum um næstu skref og hvaða aðgerða sé þörf af þeirra hálfu.

Eldri úrræði bankans vegna greiðsluerfiðleika einstaklinga verða áfram í boði og m.a. verður boð um höfuðstólslækkun erlendra lána framlengt til 30. september.

Áhrif á bankann

Augljóst er að þessar breytingar sem nú verða gerðar á lánasafni bankans munu hafa áhrif á stöðu hans og valda því að eiginfjárhlutfall bankans lækkar. Nákvæmur endurreikningur lána og endurgreiðslur til viðskiptavina eftir atvikum, munu svara því hversu mikil áhrifin verða en að öllu öðru óbreyttu er ljóst að bankinn stendur eftir sem áður traustum fótum.

Lausafjárstaða Landsbankans er sterk og rekstur bankans er góður. Stjórnendur og starfsmenn bankans hafa ríkan metnað fyrir hans hönd og telja tækifærin á markaði mikil fyrir vel rekinn banka í almannaeigu í nánustu framtíð.

Óumdeilt er að margt fór úrskeiðis í rekstri fjármálafyrirtækja á árunum fyrir bankahrun, þar með talið við lánveitingu gengistryggðra lána. Landsbankinn harmar þau óþægindi sem viðskiptavinir hafa orðið fyrir af þessum sökum.

Til baka


Fréttasafn

Dagsetning Fyrirsögn
07.09.2010 Kreppunni hvergi nærri lokið?
02.09.2010 Landsbankinn setur Límtré Vírnet ehf. í opið söluferli
31.08.2010 Síðasti afgreiðsludagur á Stöðvarfirði
31.08.2010 Landsbankinn sameinar afgreiðslu á Hellissandi og útibú á Ólafsvík
26.08.2010 Nýtt skipurit kynnt, allar framkvæmdastjórastöður auglýstar
25.08.2010 Umsókn um endurútreikning
20.08.2010 Framtakssjóður Íslands kaupir Vestia af Landsbankanum
18.08.2010 Áætlaður endurútreikningur fjarlægður úr Einkabanka
17.08.2010 Veruleg lækkun stýrivaxta aðkallandi
12.08.2010 Endurútreikningur kominn í Einkabankann
04.08.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. september 2010
23.07.2010 Lyfjaþjónustan kaupir dreifingarfyrirtækið Parlogis
21.07.2010 Allir vinna með Landsbankanum
19.07.2010 Vinningshafi í Fermingarleik Klassa
09.07.2010 Ávöxtun Íslenska lífeyrissjóðsins fyrri hluta árs 2010
07.07.2010 Landsbankinn býður fastar greiðslur og endurreikning lána
05.07.2010 Leiðrétting vegna fréttar Stöðvar 2 um fasteignaverðsspá Landsbankans
30.06.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. ágúst 2010
16.06.2010 Yfirlýsing Landsbankans vegna dóms Hæstaréttar í máli SP-Fjármögnunar
15.06.2010 Aukakrónur: Samstarfsaðilum fjölgar ört
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 150,15 151,25
USD Up 0,22 117,94 118,80
GBP Up 0,08 182,86 184,38
JPY Up 0,28 1,4052 1,4184
DKK Up 0,01 20,1640 20,32
CHF Up 0,15 116,56 117,66
GVT Up 0,08 206,01 206,69
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,1993 08.09
USD 120,6048 08.09
GBP 184,7484 08.09
DKK 20,8660 08.09
SEK 16,5519 08.09
NOK 19,6102 08.09
CHF 120,4468 08.09
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,2336 09.09
USD 120,8804 09.09
GBP 186,8122 09.09
DKK 20,8617 09.09
SEK 16,8377 09.09
NOK 19,6142 09.09
CHF 120,4458 09.09