Fréttir og tilkynningar - 5. júlí 2010 17:48
Leiðrétting vegna fréttar Stöðvar 2 um fasteignaverðsspá Landsbankans
Rangt er að Landsbankinn hafi gefið út eða gert sérstaka spá um verðþróun á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu eins og fram kom í frétt Stöðvar 2 að kvöldi 4. júlí. Engin slík spá hefur verið gerð.
Við mat á færslu eigna milli gamla bankans og nýja bankans, var stuðst við ákveðnar sviðsmyndir eða reiknilíkön sem byggð eru m.a. á fasteignamati og öðrum gögnum um fasteignamarkað. Í einni sviðsmyndanna var ráð fyrir því gert að bankar þyrftu að leysa til sín íbúðir í stórum stíl og eiga þær um nokkurn tíma með tilheyrandi verðfalli á markaði. Í þeirri sviðsmynd sem segja má að sé sú dekksta, var miðað við að Landsbankinn gæti ekki búist við að endurheimta meira en sem nemur 150 þúsund krónum á fermetra eftir að allur kostnaður væri reiknaður. Sú tala felur ekki í sér neinskonar almenna spá um verðþróun.
Þetta ástand hefur aldrei skapast, enda hafa bankar og fjármálastofnanir ekki leyst til sín þann fjölda íbúða sem ofangreint dæmi byggðist á.
Landsbankinn hefur upplýst að einstaklingslán hafi verið keypt af Skilanefnd Landsbanka Íslands hf. fyrir um 66% af nafnvirði þeirra að meðaltali. Lítill munur er á innlendum og erlendum lánum hvað þetta varðar.
Allt tal um að bankinn hafi spáð því að almennt verð á fasteignamarkaði færi í 150 þúsund krónur pr. fermetra eða að bankinn hafi tekið yfir tiltekin fasteignalán á 25% af raunvirði er fjarri öllum sanni.
Til baka