Fréttir

Fréttir og tilkynningar - 30. júní 2010 17:33

Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. ágúst 2010

Landsbankinn hefur framlengt tilboð sitt um engan mun á kaup- og sölugengi í verðbréfa- og hlutabréfasjóðum Landsvaka til 1. ágúst 2010.

Skuldabréfasjóðir Landsvaka

Landsvaki býður upp á úrval skuldabréfasjóða sem henta vel til reglubundins sparnaðar. Einfalt er að kaupa og selja í sjóðunum og njóta viðskiptavinir þess að enginn munur er á kaup- og sölugengi í áskrift. Sjóðirnir hafa á síðustu mánuðum skilað betri ávöxtun en almennir innlánsreikningar.

Skuldabréfasjóðir fjárfesta aðallega í skuldabréfum útgefnum af aðilum sem fjármagna sig með útgáfu bréfanna (ríki, sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki). Tilgangur sjóðanna er að ávaxta fé sjóðfélaga og dreifa áhættu. Sjóðirnir kaupa skuldabréf á markaði samkvæmt skilgreindri fjárfestingastefnu og innheimta af þeim afborganir og vexti. Virði sjóðanna á hverjum tíma ræðst einnig af verðbreytingum á bréfunum þegar þau ganga kaupum og sölum á markaði. Styrkur hvers sjóðs ræðst af undirliggjandi eignum hans, það er fjárhagslegum styrk útgefenda þeirra skuldabréfa sem viðkomandi sjóður hefur fjárfest í.

Landsvaki býður upp á sex skuldabréfasjóði sem fjárfesta eingöngu í ríkistryggðum skuldabréfum og innlánum, Sparibréf löng, Sparibréf meðallöngSparibréf stutt, Sparibréf verðtryggð, Sparibréf óverðtryggð og Reiðubréf ríkistryggð. Sjóðirnir hafa allir sömu fjárfestingarstefnu en mislangan meðallíftíma.

Landsvaki rekur einnig þrjá blandaða skuldabréfasjóði, Markaðsbréf löngMarkaðsbréf meðallöng og Markaðsbréf stutt. Um er að ræða sjóði sem fjárfesta að lágmarki 60% í verðbréfum útgefnum af íslenska ríkinu en einnig í skuldabréfum útgefnum af sveitarfélögum, fjármálastofnunum og öðrum fyrirtækjum. Sjóðirnir hafa allir sömu fjárfestingarstefnu en mislangan meðallíftíma.

Hlutabréfasjóðir Landsvaka

Hlutabréfasjóðir fjárfesta fyrst og fremst í hlutabréfum á markaði samkvæmt fyrirfram kunngerðri fjárfestingastefnu og fá greiddan af þeim arð eftir atvikum. Ávöxtun sjóðsins á hverjum tíma ræðst af arðgreiðslum og af verðhækkunum á eignum sjóðsins. Styrkur hvers sjóðs ræðst af undirliggjandi eignum hans, fjárhagslegum styrk útgefenda þeirra verðbréfa sem sjóðurinn hefur fjárfest í og þeim fjölmörgu þáttum sem áhrif geta haft á verð hlutabréfa.

Landsvaki rekur þrjá hlutabréfasjóði. Annars vegar er um að ræða vísitölusjóðinn Nordic 40 sem líkir eftir hlutabréfavísitölunni Nordic 40 og gerir fjárfestum þannig kleift ná meðalávöxtun þeirra hlutabréfa sem mynda viðkomandi vísitölu að frádregnum kostnaði.

Hins vegar er um ræða hlutabréfasjóði með virkri stýringu þar sem sjóðstjóri velur eignir inn í sjóðinn innan ramma fjárfestingastefnu hans. Markmið slíkra sjóða er að ná betri ávöxtun en viðmið. Sjóðir Landsvaka með virkri stýringu eru Úrvalsbréf, sem fjárfestir í hlutabréfum skráðum í Kauphöll Íslands og Global Equity Fund sem fjárfestir aðallega í erlendum hlutabréfasjóðum og í kauphallarsjóðum (ETF).

Enginn munur er á kaup- og sölugengi sjóða fram til 1. ágúst 2010.

Landsvaki

Landsvaki er sjálfstætt starfandi fjármálafyrirtæki sem annast rekstur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða. Félagið starfar sem rekstrarfélag samkvæmt starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu. Landsvaki hf. er í eigu Landsbankans (NBI hf.) sem jafnframt er vörslufélag sjóðanna. Sjá nánari upplýsingar um Landsvaka á www.landsvaki.is.

Landsbankinn annast alla sölu í sjóði Landsvaka. Nánari upplýsingar um sjóðina má finna í útboðslýsingum þeirra og hjá Fjármálaráðgjöf Landsbankans í síma 410 4040. Viðskiptavinum er bent á að kynna sér vel útboðslýsingar sjóða áður en fjárfest er í þeim en þar er meðal annars að finna ítarlega umfjöllun um þá áhættu sem fylgir í fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða.

Til baka


Fréttasafn

Dagsetning Fyrirsögn
07.09.2010 Kreppunni hvergi nærri lokið?
02.09.2010 Landsbankinn setur Límtré Vírnet ehf. í opið söluferli
31.08.2010 Síðasti afgreiðsludagur á Stöðvarfirði
31.08.2010 Landsbankinn sameinar afgreiðslu á Hellissandi og útibú á Ólafsvík
26.08.2010 Nýtt skipurit kynnt, allar framkvæmdastjórastöður auglýstar
25.08.2010 Umsókn um endurútreikning
20.08.2010 Framtakssjóður Íslands kaupir Vestia af Landsbankanum
18.08.2010 Áætlaður endurútreikningur fjarlægður úr Einkabanka
17.08.2010 Veruleg lækkun stýrivaxta aðkallandi
12.08.2010 Endurútreikningur kominn í Einkabankann
04.08.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. september 2010
23.07.2010 Lyfjaþjónustan kaupir dreifingarfyrirtækið Parlogis
21.07.2010 Allir vinna með Landsbankanum
19.07.2010 Vinningshafi í Fermingarleik Klassa
09.07.2010 Ávöxtun Íslenska lífeyrissjóðsins fyrri hluta árs 2010
07.07.2010 Landsbankinn býður fastar greiðslur og endurreikning lána
05.07.2010 Leiðrétting vegna fréttar Stöðvar 2 um fasteignaverðsspá Landsbankans
30.06.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. ágúst 2010
16.06.2010 Yfirlýsing Landsbankans vegna dóms Hæstaréttar í máli SP-Fjármögnunar
15.06.2010 Aukakrónur: Samstarfsaðilum fjölgar ört
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 150,15 151,25
USD Up 0,47 118,03 118,89
GBP Up 0,06 182,17 183,69
JPY Up 0,57 1,4072 1,4204
DKK 0,00 20,1620 20,3180
CHF Down 0,09 116,42 117,52
GVT Up 0,17 206,18 206,86
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,0378 09.09
USD 120,8291 09.09
GBP 186,5772 09.09
DKK 20,8444 09.09
SEK 16,6146 09.09
NOK 19,6133 09.09
CHF 120,6111 09.09
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,2336 09.09
USD 120,8804 09.09
GBP 186,8122 09.09
DKK 20,8617 09.09
SEK 16,8377 09.09
NOK 19,6142 09.09
CHF 120,4458 09.09