Fréttir

Fréttir og tilkynningar - 3. júní 2010 15:59

Fjórtán framúrskarandi námsmenn styrktir

Fjórtán námsmenn fengu í dag úthlutað námsstyrk frá Landsbankanum en styrkirnir eru nú veittir í 21. sinn. Vel á fimmta hundrað umsóknir bárust um styrkina, sem eru á bilinu 150 - 350 þúsund krónur.

 Styrkþegar námsstyrkja Landsbankans ásamt Steinþóri Pálssyni, bankastjóra Landsbankans, og Gunnari Helga Hálfdanarsyni, formanni bankaráðs Landsbankans.

Námsstyrkir Landsbankans nema rúmlega fjórum milljónum króna, sem eru hæstu styrkveitingar banka af þessu tagi á Íslandi. Veittir eru styrkir í fjórum flokkum; til framhaldsskóla- og iðnnema, háskólanema, háskólanema á framhaldsstigi og listnema. Landsbankinn er eini bankinn sem veitir sérstaka listnámsstyrki.

Dómnefndin leitaðist við að velja framúrskarandi námsmenn með mikinn metnað og framtíðarsýn sem nefndin taldi líklega til að auðga íslenskt samfélag í framtíðinni.  Einnig var litið til annarra atriða við valið svo sem rannsókna og greinaskrifa, meðmæla, sjálfboðastarfa, afreka í íþróttum og þátttöku í félagsmálum svo nokkuð sé nefnt.

Styrkþegar ársins 2010 eru:

Styrkir til framhaldsskóla- og iðnnáms - 150.000 kr. hver

  • Arnar Pétursson
  • Eva Hrund Hlynsdóttir
  • Olga Sigurðardóttir

Styrkir til háskólanáms - 300.000 kr. hver

  • Birna Þórisdóttir
  • Hafsteinn Einarsson
  • Halla Oddný Magnúsdóttir

Styrkir til háskólanáms á framhaldsstigi - 350.000 kr. hver

  • Charlotte Ólöf Jónsdóttir Ferrier
  • Freyja Haraldsdóttir
  • Gunnsteinn Hall
  • Ólafur Garðar Halldórsson

Styrkir til listnáms - 350.000 kr. hver

  • Arngunnur Árnadóttir
  • Ása Hjörleifsdóttir
  • Hera Hilmarsdóttir
  • Karitas Möller

Í dómnefnd sátu Gunnar Helgi Hálfdanarson, formaður bankaráðs Landsbankans, Rannveig Rist forstjóri Alcan á Íslandi, Runólfur Smári Steinþórsson, forstöðumaður MBA náms við HÍ, Kolbrún Halldórsdóttir, forseti Bandalags íslenskra listamanna, Atli Atlason framkvæmdastjóri Starfsmannasviðs og Óskar Hafnfjörð Auðunsson forstöðumaður markaðsdeildar.

Til baka


Fréttasafn

Dagsetning Fyrirsögn
07.09.2010 Kreppunni hvergi nærri lokið?
02.09.2010 Landsbankinn setur Límtré Vírnet ehf. í opið söluferli
31.08.2010 Síðasti afgreiðsludagur á Stöðvarfirði
31.08.2010 Landsbankinn sameinar afgreiðslu á Hellissandi og útibú á Ólafsvík
26.08.2010 Nýtt skipurit kynnt, allar framkvæmdastjórastöður auglýstar
25.08.2010 Umsókn um endurútreikning
20.08.2010 Framtakssjóður Íslands kaupir Vestia af Landsbankanum
18.08.2010 Áætlaður endurútreikningur fjarlægður úr Einkabanka
17.08.2010 Veruleg lækkun stýrivaxta aðkallandi
12.08.2010 Endurútreikningur kominn í Einkabankann
04.08.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. september 2010
23.07.2010 Lyfjaþjónustan kaupir dreifingarfyrirtækið Parlogis
21.07.2010 Allir vinna með Landsbankanum
19.07.2010 Vinningshafi í Fermingarleik Klassa
09.07.2010 Ávöxtun Íslenska lífeyrissjóðsins fyrri hluta árs 2010
07.07.2010 Landsbankinn býður fastar greiðslur og endurreikning lána
05.07.2010 Leiðrétting vegna fréttar Stöðvar 2 um fasteignaverðsspá Landsbankans
30.06.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. ágúst 2010
16.06.2010 Yfirlýsing Landsbankans vegna dóms Hæstaréttar í máli SP-Fjármögnunar
15.06.2010 Aukakrónur: Samstarfsaðilum fjölgar ört
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 150,15 151,25
USD Up 0,22 117,94 118,80
GBP Up 0,08 182,86 184,38
JPY Up 0,28 1,4052 1,4184
DKK Up 0,01 20,1640 20,32
CHF Up 0,15 116,56 117,66
GVT Up 0,08 206,01 206,69
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,1993 08.09
USD 120,6048 08.09
GBP 184,7484 08.09
DKK 20,8660 08.09
SEK 16,5519 08.09
NOK 19,6102 08.09
CHF 120,4468 08.09
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,2336 09.09
USD 120,8804 09.09
GBP 186,8122 09.09
DKK 20,8617 09.09
SEK 16,8377 09.09
NOK 19,6142 09.09
CHF 120,4458 09.09