Fréttir

Fréttir og tilkynningar - 1. júní 2010 09:35

Steinþór Pálsson tekur við af Ásmundi Stefánssyni

Ásmundur Stefánsson lætur af störfum sem bankastjóri Landsbankans (NBI hf.) frá og með deginum í dag. Við starfinu tekur Steinþór Pálsson.

Ásmundur hefur gengt stöðu bankastjóra frá 1. mars á síðasta ári, en hann var áður formaður bankaráðs frá nóvember 2008. Hann kom til liðs við Landsbankann eftir að hafa sinnt samræmingarhlutverki fyrir hönd ríkisstjórnar Geirs H. Haarde strax eftir hrun íslensku bankanna.

Ásmundur tók við rekstri bankans á erfiðum tíma en hefur tekist að byggja Landsbankann upp og skilar honum af sér í traustri stöðu eins og sjá má af afkomu bankans fyrstu þrjá mánuði ársins.

Bankaráð Landsbankans þakkar Ásmundi vel unnin störf.

Í dag tekur Steinþór Pálsson til starfa sem bankastjóri. Eru miklar vonir bundnar við ráðningu hans. Verkefni hans verður að móta bankanum framtíðarsýn með því að byggja á því sem gert hefur verið, en leita jafnframt nýrra leiða til að uppfylla metnaðarfull markmið bankans.

Steinþór Pálsson hefur langa og farsæla reynslu af stjórnunarstörfum við rekstur bankastofnana og framleiðslufyrirtækja innanlands og erlendis og mikla reynslu af breytingastjórnun og stefnumótun.

Starfsferill:

1986-1989Framkvæmdastjóri lánasviðs Verzlunarbanka Íslands
1990-2000Starfsmaður Íslandsbanka, m.a. sem forstöðumaður lánadeildar, fjárfestingarlána útibúaþjónustu, áhættustýringar og fyrirtækjaþjónustu auk þess sem hann var virkur í stefnumótunarstarfi Íslandsbanka og samrunaferli forvera hans.
2001-2002Fjármálastjóri- og rekstrarstjóri, Urður, Verðandi og Skuld
2002-2010Framkvæmdastjóri Actavis á Möltu, framkvæmdastjóri Actavis í Bandaríkjunum og nú tæp 2 síðustu árin framkvæmdastjóri Actavis samstæðunnar á Íslandi á sviði stefnumótunar.

Til baka


Fréttasafn

Dagsetning Fyrirsögn
07.09.2010 Kreppunni hvergi nærri lokið?
02.09.2010 Landsbankinn setur Límtré Vírnet ehf. í opið söluferli
31.08.2010 Síðasti afgreiðsludagur á Stöðvarfirði
31.08.2010 Landsbankinn sameinar afgreiðslu á Hellissandi og útibú á Ólafsvík
26.08.2010 Nýtt skipurit kynnt, allar framkvæmdastjórastöður auglýstar
25.08.2010 Umsókn um endurútreikning
20.08.2010 Framtakssjóður Íslands kaupir Vestia af Landsbankanum
18.08.2010 Áætlaður endurútreikningur fjarlægður úr Einkabanka
17.08.2010 Veruleg lækkun stýrivaxta aðkallandi
12.08.2010 Endurútreikningur kominn í Einkabankann
04.08.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. september 2010
23.07.2010 Lyfjaþjónustan kaupir dreifingarfyrirtækið Parlogis
21.07.2010 Allir vinna með Landsbankanum
19.07.2010 Vinningshafi í Fermingarleik Klassa
09.07.2010 Ávöxtun Íslenska lífeyrissjóðsins fyrri hluta árs 2010
07.07.2010 Landsbankinn býður fastar greiðslur og endurreikning lána
05.07.2010 Leiðrétting vegna fréttar Stöðvar 2 um fasteignaverðsspá Landsbankans
30.06.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. ágúst 2010
16.06.2010 Yfirlýsing Landsbankans vegna dóms Hæstaréttar í máli SP-Fjármögnunar
15.06.2010 Aukakrónur: Samstarfsaðilum fjölgar ört
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 150,15 151,25
USD Up 0,22 117,94 118,80
GBP Up 0,08 182,86 184,38
JPY Up 0,28 1,4052 1,4184
DKK Up 0,01 20,1640 20,32
CHF Up 0,15 116,56 117,66
GVT Up 0,08 206,01 206,69
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,1993 08.09
USD 120,6048 08.09
GBP 184,7484 08.09
DKK 20,8660 08.09
SEK 16,5519 08.09
NOK 19,6102 08.09
CHF 120,4468 08.09
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,2336 09.09
USD 120,8804 09.09
GBP 186,8122 09.09
DKK 20,8617 09.09
SEK 16,8377 09.09
NOK 19,6142 09.09
CHF 120,4458 09.09