Fréttir

Fréttir og tilkynningar - 31. maí 2010 16:36

Landsbankinn hagnast um 8,3 milljarða fyrstu þrjá mánuði ársins

Arðsemi eiginfjár 21%

Árshlutareikningur fyrsta ársfjórðungs 2010

Afkoma Landsbankans var jákvæð um 8,3 milljarða króna eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi ársins 2010. Hagnaður bankans allt síðasta ár var 14,3 milljarðar króna. Þá nam arðsemi eiginfjár um 10%.

Eiginfjárhlutfall Landsbankans nemur nú 16,3% og uppfyllir því bankinn kröfur Fjármálaeftirlitsins um 16% lágmarks eiginfjárhlutfall.

Helstu stærðir úr rekstri og efnahag eru:

  • Hagnaður eftir skatt nam 8,3 milljörðum króna.
  • Arðsemi eigin fjár var 21%
  • Vaxtamunur af meðalstöðu heildareigna var 2,5%. 
  • Eigið fé bankans er nú 166 milljarðar króna. 
  • Eiginfjárhlutfall (CAD -hlutfall) var 16,3% samanborið við15% í árslok 2009.
  • Heildareignir bankans voru 1.113 milljarðar króna í lok mars 2010.
  • Innlán í hlutfalli við útlán til viðskiptavina eru 67% en voru 68% um síðustu áramót
  • Rekstrarkostnaður bankans af reglulegri starfsemi nam 4,0 milljörðum króna.

Árið 2009 var fyrsta heila starfsár Landsbankans og afar óvenjulegt í alla staði. Fyrri hluti þess var bankanum afar mótdrægur en síðari hluta ársins batnaði afkoman verulega. Segja má að fyrsti ársfjórðungur ársins 2010 sé rökrétt framhald þeirrar þróunar og hefur rekstur bankans verið viðunandi. Þó ber þess að geta að gengisþróun hefur verið bankanum hagfelld á þessum tíma og skiptir miklu um arðsemi hans.

Afkoma á árinu 2008, miðað við tímabilið 7. október til 31. desember, var neikvæð um 6,9 milljarða króna og arðsemi ársins 2009 ófullnægjandi eða nokkru lægri en sá fjármagnskostnaður sem ríkið bar af hlutafjárframlagi sínu til bankans.

Landsbankinn hefur það sem af er árinu 2010 haldið áfram þróun umfangsmikilla ráðstafana til aðstoðar einstaklingum, fjölskyldum og fyrirtækjum sem eiga í erfiðleikum. Nú síðast kynnti bankinn 25% lækkun höfuðstóls erlendra lána bæði einstaklinga og fyrirtækja. Með þessu móti kemur bankinn til móts við kröfur um niðurskriftir skulda í verulegum mæli.

Landsbankinn er stærsta fjármálastofnun landsins og rekur 36 útibú og afgreiðslur um land allt. Íslenska ríkið á rúm 81% í Landsbankanum (NBI hf.) og Skilanefnd Landsbanka Íslands hf. fer með tæplega 19% hlut. Rúmlega 1100 starfsmenn starfa hjá bankanum.

Helstu dótturfélög Landsbankans eru eignaleigufyrirtækið SP Fjármögnun, Landsvaki sem annast rekstur verðbréfasjóða og fjárfestingarsjóða., eignaumsýslufélögin Reginn og Vestia, Horn sem fer með hlutabréfaeign bankans í öðrum félögum, og Hömlur þar sem smærri eignir bankans eru vistaðar tímabundið fyrir sölu.

Umfangsmikið endurskipulagningarstarf hefur farið fram í bankanum allt frá hruni og allt skipulag hans, verkferlar og vinnubrögð verið endurskoðað. Steinþór Pálsson tekur við sem bankastjóri Landsbankans 1. júní. Ásmundur Stefánsson lætur þá af störfum.

Ásmundur Stefánsson bankastjóri segir:

"Ég læt nú af störfum sem bankastjóri Landsbankans eftir að hafa gengt því starfi í 15 mánuði. Þetta hefur verið erfiður tími í sögu bankans en með öflugri og samhentri vinnu hæfra starfsmanna, hefur tekist að koma rekstrinum í ásættanlegt horf. Bankinn hefur nú allar forsendur til að takast á við það hlutverk sem hann ætlar sér sem stærsta fjármálastofnun landsins og að vera leiðandi í endurreisn efnahagslífsins. Það er ánægjulegt að skila af sér traustu búi.

Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka bankaráði, samstarfsfólki mínu og viðskiptavinum fyrir mjög gott samstarf á þeim tíma sem ég hef verið i Landsbankanum. Ég óska bankanum alls hins besta í framtíðinni og eftirmanni mínum velfarnaði í starfi."

Árshlutareikningur fyrsta ársfjórðungs 2010

Nánari fjárhagslegar upplýsingar um Landsbankann

Til baka


Fréttasafn

Dagsetning Fyrirsögn
07.09.2010 Kreppunni hvergi nærri lokið?
02.09.2010 Landsbankinn setur Límtré Vírnet ehf. í opið söluferli
31.08.2010 Síðasti afgreiðsludagur á Stöðvarfirði
31.08.2010 Landsbankinn sameinar afgreiðslu á Hellissandi og útibú á Ólafsvík
26.08.2010 Nýtt skipurit kynnt, allar framkvæmdastjórastöður auglýstar
25.08.2010 Umsókn um endurútreikning
20.08.2010 Framtakssjóður Íslands kaupir Vestia af Landsbankanum
18.08.2010 Áætlaður endurútreikningur fjarlægður úr Einkabanka
17.08.2010 Veruleg lækkun stýrivaxta aðkallandi
12.08.2010 Endurútreikningur kominn í Einkabankann
04.08.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. september 2010
23.07.2010 Lyfjaþjónustan kaupir dreifingarfyrirtækið Parlogis
21.07.2010 Allir vinna með Landsbankanum
19.07.2010 Vinningshafi í Fermingarleik Klassa
09.07.2010 Ávöxtun Íslenska lífeyrissjóðsins fyrri hluta árs 2010
07.07.2010 Landsbankinn býður fastar greiðslur og endurreikning lána
05.07.2010 Leiðrétting vegna fréttar Stöðvar 2 um fasteignaverðsspá Landsbankans
30.06.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. ágúst 2010
16.06.2010 Yfirlýsing Landsbankans vegna dóms Hæstaréttar í máli SP-Fjármögnunar
15.06.2010 Aukakrónur: Samstarfsaðilum fjölgar ört
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 150,15 151,25
USD Up 0,22 117,94 118,80
GBP Up 0,08 182,86 184,38
JPY Up 0,28 1,4052 1,4184
DKK Up 0,01 20,1640 20,32
CHF Up 0,15 116,56 117,66
GVT Up 0,08 206,01 206,69
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,1993 08.09
USD 120,6048 08.09
GBP 184,7484 08.09
DKK 20,8660 08.09
SEK 16,5519 08.09
NOK 19,6102 08.09
CHF 120,4468 08.09
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,2336 09.09
USD 120,8804 09.09
GBP 186,8122 09.09
DKK 20,8617 09.09
SEK 16,8377 09.09
NOK 19,6142 09.09
CHF 120,4458 09.09