Fréttir og tilkynningar - 31. maí 2010 13:57
Nýir valmöguleikar til fjárfestingar í ríkisskuldabréfum
Landsvaki hf. hefur sett á stofn tvo nýja verðbréfasjóði sem fjárfesta í skuldabréfum og öðrum kröfum með ábyrgð íslenska ríkisins. Sjóðirnir Sparibréf verðtryggð og Sparibréf óverðtryggð eru viðbót við framboð félagsins á ríkisskuldabréfasjóðum. Þeir hafa sömu fjárfestingarstefnu og Sparibréf stutt, meðallöng og löng, 90-100% í ríkisskuldabréfum og 0-10% í innlánum fjármálafyrirtækja. Skuldaraáhætta takmarkast því við íslenska ríkið og innlánastofnanir.
Sparibréf verðtryggð hafa einungis heimild til fjárfestingar í verðtryggðum kröfum með ábyrgð íslenska ríkisins.
Sparibréf óverðtryggð hafa einungis heimild til fjárfestingar í óverðtryggðum kröfum með ábyrgð íslenska ríkisins.
Sjóðstjóri hefur frjálsar hendur með meðallíftíma sjóðanna.
Til baka