Fréttir

Fréttir og tilkynningar - 21. maí 2010 15:21

Landsbankinn kaupir rekstrareiningar úr þrotabúi BM Vallár

Skiptastjóri þrotabús BM Vallár hefur tekið tilboði Landsbankans um kaup Landsbankans á rekstrareiningunum Vírneti í Borgarbyggð, Límtré á Flúðum og Yleininga í Reykholti en þessar rekstrareiningar voru sá hluti af rekstri BM Vallár hf. sem fjármagnaður var af Landsbankanum.

Nýtt rekstarfélag í eigu Landsbankans mun taka við rekstri þessara eininga frá og með 25. maí. Nýir stjórnendur taka við rekstrinum frá og með þeim degi. Framkvæmdastjóri nýs rekstrarfélags verður Stefán Logi Haraldsson, núverandi aðstoðarforstjóri BM Vallár og fyrrverandi framkvæmdastjóri Límtré-Vírnets.

Með þessu kaupum tekst að tryggja 66 störf í Borgarbyggð, Reykholti og að Flúðum og verður öllum starfsmönnum á þessum stöðum boðið starf í hinu nýju félagi.

Landsbankinn hyggst selja rekstrarfélagið innan 6 mánaða og verður sú sala og fyrirkomulag hennar auglýst og kynnt nánar eins skjótt og auðið er.

Fulltrúar Landsbankans hafa þegar kynnt fyrirætlanir sínar fyrir starfsmönnum, verkalýðsfélögum og sveitarstjórnarmönnum á viðkomandi svæðum.

Límtré/Vírnet byggir á rekstri gamalgróinna fyrirtækja. Límtré á Flúðum framleiðir burðarvirki úr límtré og hefur verið leiðandi á íslenskum markaði og einnig flutt út framleiðslu sína. Vírnet í Borgarbyggð framleiðir klæðningar, þakstál og festingar í byggingariðnaði og Yleiningar úr Reykholti framleiða einangraðar stáleiningar til bygginga.

Til baka


Fréttasafn

Dagsetning Fyrirsögn
07.09.2010 Kreppunni hvergi nærri lokið?
02.09.2010 Landsbankinn setur Límtré Vírnet ehf. í opið söluferli
31.08.2010 Síðasti afgreiðsludagur á Stöðvarfirði
31.08.2010 Landsbankinn sameinar afgreiðslu á Hellissandi og útibú á Ólafsvík
26.08.2010 Nýtt skipurit kynnt, allar framkvæmdastjórastöður auglýstar
25.08.2010 Umsókn um endurútreikning
20.08.2010 Framtakssjóður Íslands kaupir Vestia af Landsbankanum
18.08.2010 Áætlaður endurútreikningur fjarlægður úr Einkabanka
17.08.2010 Veruleg lækkun stýrivaxta aðkallandi
12.08.2010 Endurútreikningur kominn í Einkabankann
04.08.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. september 2010
23.07.2010 Lyfjaþjónustan kaupir dreifingarfyrirtækið Parlogis
21.07.2010 Allir vinna með Landsbankanum
19.07.2010 Vinningshafi í Fermingarleik Klassa
09.07.2010 Ávöxtun Íslenska lífeyrissjóðsins fyrri hluta árs 2010
07.07.2010 Landsbankinn býður fastar greiðslur og endurreikning lána
05.07.2010 Leiðrétting vegna fréttar Stöðvar 2 um fasteignaverðsspá Landsbankans
30.06.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. ágúst 2010
16.06.2010 Yfirlýsing Landsbankans vegna dóms Hæstaréttar í máli SP-Fjármögnunar
15.06.2010 Aukakrónur: Samstarfsaðilum fjölgar ört
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 150,15 151,25
USD Up 0,47 118,03 118,89
GBP Up 0,06 182,17 183,69
JPY Up 0,57 1,4072 1,4204
DKK 0,00 20,1620 20,3180
CHF Down 0,09 116,42 117,52
GVT Up 0,17 206,18 206,86
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,0378 09.09
USD 120,8291 09.09
GBP 186,5772 09.09
DKK 20,8444 09.09
SEK 16,6146 09.09
NOK 19,6133 09.09
CHF 120,6111 09.09
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,2336 09.09
USD 120,8804 09.09
GBP 186,8122 09.09
DKK 20,8617 09.09
SEK 16,8377 09.09
NOK 19,6142 09.09
CHF 120,4458 09.09