Fréttir

Fréttir og tilkynningar - 20. maí 2010 16:47

Steinþór Pálsson ráðinn bankastjóri Landsbankans

Steinþór Pálsson og Gunnar Helgi HálfdanarsonBankaráð Landsbankans (NBI hf.) hefur ráðið Steinþór Pálsson til að gegna störfum bankastjóra og tekur hann við af Ásmundi Stefánssyni.

Steinþór skrifaði undir ráðningarsamning við Gunnar Helga Hálfdanarson, formann bankaráðs bankans í dag. Hann mun hefja störf í bankanum 1. júní.

42 umsóknir bárust þegar starf bankastjóra var auglýst.

Gunnar Helgi Hálfdanarson lýsti ánægju með ráðninguna. "Steinþór er reyndur stjórnandi, sem hefur þá kosti sem bankaráðið hefur leitað að. Stefnan var að ráða bankastjóra sem væri leiðtogi, öflugur rekstrarmaður með bankareynslu og gæti unnið vel með viðskiptavinum, bankaráði og starfsmönnum bankans. Bankaráðið telur gríðarlega mikilvægt að fyrir Landsbankanum fari maður sem getur leitt hann áfram af þeim krafti og því þori sem þarf til að koma bankanum þangað sem hann á heima, í efsta sæti úrvalsdeildarinnar."

Steinþór Pálsson hefur langa og farsæla reynslu af stjórnunarstörfum við rekstur bankastofnana og framleiðslufyrirtækja innanlands og erlendis og mikla reynslu af breytingastjórnun og stefnumótun.

Steinþór segist hlakka til að takast á við verkefnið og kvíði því ekki. "Ég geri mér fulla grein fyrir því að það er hart í ári í íslensku atvinnulífi og að starfsemi Landsbankans skiptir miklu um hvernig endurreisn þess gengur. Ég tel hins vegar að bankinn sé vel mannaður og að staða hans sé þannig að hann geti axlað þá ábyrgð sem honum er falin. Ég hlakka til að kynnast starfsfólki bankans og vinna með því að vexti og viðgangi hans."

Steinþór er kvæntur Áslaugu Guðjónsdóttur tölvunarfræðingi og eiga þau tvær dætur.

Starfsferill:

1986-1989Framkvæmdastjóri lánasviðs Verzlunarbanka Íslands
1990-2000Starfsmaður Íslandsbanka, m.a. sem forstöðumaður lánadeildar, fjárfestingarlána útibúaþjónustu, áhættustýringar og fyrirtækjaþjónustu auk þess sem hann var virkur í stefnumótunarstarfi Íslandsbanka og samrunaferli forvera hans.
2001-2002Fjármálastjóri- og rekstrarstjóri, Urður, Verðandi og Skuld
2002-2010Framkvæmdastjóri Actavis á Möltu, framkvæmdastjóri Actavis í Bandaríkjunum og nú tæp 2 síðustu árin framkvæmdastjóri Actavis samstæðunnar á Íslandi á sviði stefnumótunar.

Til baka


Fréttasafn

Dagsetning Fyrirsögn
07.09.2010 Kreppunni hvergi nærri lokið?
02.09.2010 Landsbankinn setur Límtré Vírnet ehf. í opið söluferli
31.08.2010 Síðasti afgreiðsludagur á Stöðvarfirði
31.08.2010 Landsbankinn sameinar afgreiðslu á Hellissandi og útibú á Ólafsvík
26.08.2010 Nýtt skipurit kynnt, allar framkvæmdastjórastöður auglýstar
25.08.2010 Umsókn um endurútreikning
20.08.2010 Framtakssjóður Íslands kaupir Vestia af Landsbankanum
18.08.2010 Áætlaður endurútreikningur fjarlægður úr Einkabanka
17.08.2010 Veruleg lækkun stýrivaxta aðkallandi
12.08.2010 Endurútreikningur kominn í Einkabankann
04.08.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. september 2010
23.07.2010 Lyfjaþjónustan kaupir dreifingarfyrirtækið Parlogis
21.07.2010 Allir vinna með Landsbankanum
19.07.2010 Vinningshafi í Fermingarleik Klassa
09.07.2010 Ávöxtun Íslenska lífeyrissjóðsins fyrri hluta árs 2010
07.07.2010 Landsbankinn býður fastar greiðslur og endurreikning lána
05.07.2010 Leiðrétting vegna fréttar Stöðvar 2 um fasteignaverðsspá Landsbankans
30.06.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. ágúst 2010
16.06.2010 Yfirlýsing Landsbankans vegna dóms Hæstaréttar í máli SP-Fjármögnunar
15.06.2010 Aukakrónur: Samstarfsaðilum fjölgar ört
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 150,15 151,25
USD Up 0,47 118,03 118,89
GBP Up 0,06 182,17 183,69
JPY Up 0,57 1,4072 1,4204
DKK 0,00 20,1620 20,3180
CHF Down 0,09 116,42 117,52
GVT Up 0,17 206,18 206,86
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,0378 09.09
USD 120,8291 09.09
GBP 186,5772 09.09
DKK 20,8444 09.09
SEK 16,6146 09.09
NOK 19,6133 09.09
CHF 120,6111 09.09
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,2336 09.09
USD 120,8804 09.09
GBP 186,8122 09.09
DKK 20,8617 09.09
SEK 16,8377 09.09
NOK 19,6142 09.09
CHF 120,4458 09.09