Fréttir og tilkynningar - 21. maí 2010 14:50
Sparireikningur 24 - nýr reikningur
Sparireikningur 24 er nýr óverðtryggður innlánsreikningur, bundinn í 24 mánuði. Reikningurinn ber mjög góða vexti (í dag 6,75%) og er tilvalinn fyrir þá sem vilja hámarksávöxtun, óháð upphæð.
Tvær sparnaðarleiðir eru í boði fyrir viðskiptavini á Sparireikning 24. Annars vegar reglubundinn sparnaður, þar sem öll upphæðin sem lögð er inn á reikninginn verður laus eftir 24 mánuði og hins vegar að leggja inn einstaka upphæðir þar sem hvert innlegg er bundið í 24 mánuði og er laust eftir það. Engrar lágmarksinnistæðu er krafist á Sparireikningi 24 og hægt er að taka út af reikningnum innan binditíma gegn 1% úttektargjaldi.
Nánari upplýsingar um Sparireikning 24
Til baka