Fréttir

Fréttir og tilkynningar - 5. febrúar 2010 15:14

Landsbankinn framlengir bakhjarlasamning við Sjónarhól

Landsbankinn hefur frá upphafi verið einn bakhjarla Sjónarhóls ráðgjafarmiðstöðvar fyrir foreldra barna með sérþarfir, og samstarfið verið mikilvægur hlekkur í samfélagsstuðningi bankans alla tíð. Óskar Hafnfjörð Auðunsson, markaðsstjóri Landsbankans, skrifaði í dag undir nýjan bakhjarlasamning til næstu þriggja ára. Að auki endurnýjuðu Actavis og Kvenfélagið Hringurinn stuðning sinn.

Stuðningur bakhjarlanna hefur alla tíð verið miðstöðinni afar mikilvægur og er nú "í raun lykillinn að áframhaldandi starfi ráðgjafarmiðstöðvarinnar" segir í tilkynningu frá Sjónarhóli. Þessi stuðningur ásamt og með stuðningi ríkisstjórnarinnar að viðbættu fé sem safnaðist í landssöfnuninni "Fyrir sérstök börn til betra lífs" haustið 2003, gerði stofnun Sjónarhóls mögulega. Frá því Sjónarhóll opnaði haustið 2004 hafa vel á annað þúsund foreldrar leitað ráðgjafar þar vegna barna sinna.

Á Sjónarhóli starfa nú tveir foreldraráðgjafar auk þess sem framkvæmdastjóri sinnir ráðgjöf að hluta. Ráðgjafar Sjónarhóls veita foreldrum leiðsögn og stuðning, enda nógu alvarlegt að eiga barn með sérþarfir þó ekki þurfi jafnframt að eyða kröftum í að leita og berjast fyrir eðlilegum og sjálfsögðum réttindum. Mikil áhersla er lögð á að þjónustan sé aðgengileg og er ráðgjöf á vegum Sjónarhóls veitt endurgjaldslaust. Þjónusta Sjónarhóls er ætluð öllum óháð aldri barnins, einnig þeim sem eiga uppkomin börn. Það nægir að foreldrar/fjölskyldan hafi áhyggjur af líðan eða þroska barnsins til að fá ráðgjöf. Til að panta tíma hjá ráðgjafa þarf hvorki að liggja fyrir greining eða tilvísun frá fagaðilum.

Vefur Sjónarhóls

Til baka


Fréttasafn

Dagsetning Fyrirsögn
07.09.2010 Kreppunni hvergi nærri lokið?
02.09.2010 Landsbankinn setur Límtré Vírnet ehf. í opið söluferli
31.08.2010 Síðasti afgreiðsludagur á Stöðvarfirði
31.08.2010 Landsbankinn sameinar afgreiðslu á Hellissandi og útibú á Ólafsvík
26.08.2010 Nýtt skipurit kynnt, allar framkvæmdastjórastöður auglýstar
25.08.2010 Umsókn um endurútreikning
20.08.2010 Framtakssjóður Íslands kaupir Vestia af Landsbankanum
18.08.2010 Áætlaður endurútreikningur fjarlægður úr Einkabanka
17.08.2010 Veruleg lækkun stýrivaxta aðkallandi
12.08.2010 Endurútreikningur kominn í Einkabankann
04.08.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. september 2010
23.07.2010 Lyfjaþjónustan kaupir dreifingarfyrirtækið Parlogis
21.07.2010 Allir vinna með Landsbankanum
19.07.2010 Vinningshafi í Fermingarleik Klassa
09.07.2010 Ávöxtun Íslenska lífeyrissjóðsins fyrri hluta árs 2010
07.07.2010 Landsbankinn býður fastar greiðslur og endurreikning lána
05.07.2010 Leiðrétting vegna fréttar Stöðvar 2 um fasteignaverðsspá Landsbankans
30.06.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. ágúst 2010
16.06.2010 Yfirlýsing Landsbankans vegna dóms Hæstaréttar í máli SP-Fjármögnunar
15.06.2010 Aukakrónur: Samstarfsaðilum fjölgar ört
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 150,15 151,25
USD Up 0,47 118,03 118,89
GBP Up 0,06 182,17 183,69
JPY Up 0,57 1,4072 1,4204
DKK 0,00 20,1620 20,3180
CHF Down 0,09 116,42 117,52
GVT Up 0,17 206,18 206,86
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,0378 09.09
USD 120,8291 09.09
GBP 186,5772 09.09
DKK 20,8444 09.09
SEK 16,6146 09.09
NOK 19,6133 09.09
CHF 120,6111 09.09
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,2336 09.09
USD 120,8804 09.09
GBP 186,8122 09.09
DKK 20,8617 09.09
SEK 16,8377 09.09
NOK 19,6142 09.09
CHF 120,4458 09.09