Fréttir

Fréttir og tilkynningar - 25. janúar 2010 10:13

Tilkynning vegna úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála um samruna Vestia og Teymis

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfestir með úrskurði sínum, sem upp var kveðinn föstudaginn 22. janúar, samruna Teymis hf. og Eignarhaldsfélagins Vestia ehf. sem er dótturfyrirtæki Landsbankans.

Nefndin segir í úrskurði sínum að hún telji ekki lagagrundvöll til að ógilda samrunann eins og áfrýjandi fór fram á og fallist hún á rök Samkeppniseftirlitsins um það. Áfrýjunarnefndin fellst hins vegar á varakröfu áfrýjanda í málinu og leggur fyrir Samkeppniseftirlitið að setja samrunanum skilyrði er varða meðal hversu lengi Vestia á hlutafé í Teymi.

Eignarhaldsfélagið Vestia var stofnað af hálfu Landsbankans til að takast á við fordæmalausar aðstæður, þar sem augljóst var og er, að fjöldi fyrirtækja mun ekki geta greitt af skuldum sínum við banka og aðrar lánastofnanir og þau verða því eign kröfuhafa.

Með stofnun Vestia og aðskilnaði þess frá bankanum nást fram þau aðalmarkmið, að hámarka heimtur bankans af skuldsettum fyrirtækjum og auka verðmæti hlutafjár hans annarsvegar og halda tímabundnu eignarhaldi á fyrirtækjum aðskildum frá eiginlegri bankastarfsemi hinsvegar.

Um leið er fylgt þeim fyrirmælum stjórnvalda um að halda skuli lífi í fyrirtækjum sé þess nokkur kostur. Samkeppnisyfirvöld hafa skoðað öll mál Vestia rækilega og aldrei gert neinar athugasemdir við fyrirkomulag fyrirtækisins, stjórnartengsl við bankann eða aðra þætti rekstrarins. Bankinn og Vestia hafa frá upphafi lagt sig fram um að vinna náið með samkeppnisyfirvöldum og aldrei aðhafst neitt sem þau ekki hafa samþykkt.

Úrskurðurinn í ofangreindu máli hefur að öllu óbreyttu í för með sér að eytt verður óvissu um samkeppnisréttarlegt rekstrarumhverfi þeirra atvinnufyrirtækja sem bankinn fer með yfirráð yfir.

Það er bankanum mikið kappsmál, sem langstærsta viðskiptabanka íslenskra fyrirtækja, að reynt verði eftir föngum að koma í veg fyrir neikvæð áhrif af slíku eignarhaldi á íslenskt atvinnulíf við þær sérstæðu kringumstæður sem nú ríkja. Jafnframt verður að virða þá hagsmuni bankans er varða endurheimtur lána til slíkra fyrirtækja enda eru miklir og víðtækir hagsmunir í húfi.

Munu Landsbankinn og Vestia hér eftir sem hingað til starfa náið með samkeppnisyfirvöldum og leggja sitt lóð á vogarskálarnar við að skapa það umhverfi sem best hentar.

Fréttatilkynning - prentvæn útgáfa

Til baka


Fréttasafn

Dagsetning Fyrirsögn
07.09.2010 Kreppunni hvergi nærri lokið?
02.09.2010 Landsbankinn setur Límtré Vírnet ehf. í opið söluferli
31.08.2010 Síðasti afgreiðsludagur á Stöðvarfirði
31.08.2010 Landsbankinn sameinar afgreiðslu á Hellissandi og útibú á Ólafsvík
26.08.2010 Nýtt skipurit kynnt, allar framkvæmdastjórastöður auglýstar
25.08.2010 Umsókn um endurútreikning
20.08.2010 Framtakssjóður Íslands kaupir Vestia af Landsbankanum
18.08.2010 Áætlaður endurútreikningur fjarlægður úr Einkabanka
17.08.2010 Veruleg lækkun stýrivaxta aðkallandi
12.08.2010 Endurútreikningur kominn í Einkabankann
04.08.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. september 2010
23.07.2010 Lyfjaþjónustan kaupir dreifingarfyrirtækið Parlogis
21.07.2010 Allir vinna með Landsbankanum
19.07.2010 Vinningshafi í Fermingarleik Klassa
09.07.2010 Ávöxtun Íslenska lífeyrissjóðsins fyrri hluta árs 2010
07.07.2010 Landsbankinn býður fastar greiðslur og endurreikning lána
05.07.2010 Leiðrétting vegna fréttar Stöðvar 2 um fasteignaverðsspá Landsbankans
30.06.2010 Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. ágúst 2010
16.06.2010 Yfirlýsing Landsbankans vegna dóms Hæstaréttar í máli SP-Fjármögnunar
15.06.2010 Aukakrónur: Samstarfsaðilum fjölgar ört
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

landsbanki.is

Alm. gengi
Mynt Br.% Kaup Sala
EUR 0,00 150,15 151,25
USD Up 0,47 118,03 118,89
GBP Up 0,06 182,17 183,69
JPY Up 0,57 1,4072 1,4204
DKK 0,00 20,1620 20,3180
CHF Down 0,09 116,42 117,52
GVT Up 0,17 206,18 206,86
Visa
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,0378 09.09
USD 120,8291 09.09
GBP 186,5772 09.09
DKK 20,8444 09.09
SEK 16,6146 09.09
NOK 19,6133 09.09
CHF 120,6111 09.09
MasterCard
Gjaldmiðill Gengi Uppfært dags.
EUR 154,2336 09.09
USD 120,8804 09.09
GBP 186,8122 09.09
DKK 20,8617 09.09
SEK 16,8377 09.09
NOK 19,6142 09.09
CHF 120,4458 09.09